Sjómaðurinn - 01.06.1940, Síða 37
S JÓM AÐURINN
31
Á öðrum degi var svo farið að bjarga fiskinum
og fleiru úr skipinu, og gengu Akurnesingar fram
í ])ví með miklum afköstum og dugnaði og ekki
varð fjörið minna er fundist liöfðu 2 tunnur af
brennivini i farminum, sem fara áttu til Patreks-
fjarðar. Átti að nota drykkinn í brúðkaupsveislu
hjónaleysa sem ætluðu að gifta sig. Mig minnir að
viðtakandi hafi heitað Backmann, en fyrra nafn-
ið man eg ekki. Geir tók tunnurnar undir sina
vernd en önnur hafði slegist til í lestinni er skipið
strandaði og lak, voru margir sem hagnýttu sér
dropánn í kuldanum. Ekki tókst að bjarga nema
litlu af farmi skipsins og eftir 4 daga var skipið
hrotið niður af skerinu, en þó mun eitthvað sjást
eftir af leifum þess, en þann dag í dag.
Björgunarskipið flutti svo okkur til Reykjavík-
Ur og var okkur komið fyrir á Hótel ísland. Þar
vorum við ])ar til sjóréttur liafði tekið mál okkar
fyrir. Norskur konsúll var þá Tl). Klingenberg og
andaðist hann i Marsailles á Frakklandi, en skrif-
ari lians var Frans Zimsen, fyrverandi sýslumaður.
Kent var um kompásskekkju að skipið strandaði.
Þegar „Force“ strandaði var elcki kominn viti á
Akranes og nú eru tímarnir svo breyttir og fram-
farir svo miklar þessi 27 ár sem liðin eru, að eng-
an l)efði órað fyrir því, og öryggi sjómanna stór-
bætt. En óhætt er að fullyrða, að konur standa
framarlcga í því að létta undir að landtaka fyrir
sjófarendum verði sem hættuminst.
Að endingu vil eg svo fyrir mína hönd og allra
sem enn kunna að vera á lifi frá Force-strandinu,
l)lessa minningu hinna látnu heiðurshjóna. Odds
Guð)nundssonar og konu hans, Halldóru Guð-
mundsdóttur. Síðar varð hlutskifti Odds að hljóta
vota gröf ásamt syni sínum, Haunesi; druknuðu
þeir í Borgarfirði í apríl 1918 á Lundhólmagranda.
En öðrum syni bans Sigurði, ))ú bónda í Kaldardal í
Skilamannahreppi og systrum hans færi eg mínar
bestu kveðjur.
Eirin minjagrip átti eg i fjöldamörg ár sem Hall-
dóra húsfreyja gaf mér. Það voru ullarsokkar með
hvítri fit en mórauðir að öðru leyti, og altaf þegar
eg fór í þá runnu upp fyrir mér þær stundir, er
Halldóra húsfreyja i Presthúsum færði mig úr sjó-
blautum og frosnum sokkum og gaf mér þessa í
staðinn. Mikið starf er nú hafið um land alt til
stvrktar slysavörnUm, en fagurt fordæmi gáfu
hjó))in í Presthúsum á Akranesi fyrir 27 árum,
þegar sjóhrakta menn af gufuskipinu „Force“ frá
Haugasundi bar að garði.
Guðjón M. Jónsson.
UTVEGSBAN Kl ISLANDS %
REYKJAVÍK
ÁSAMT ÚTIBtUM Á AKUREYRI, ÍSAFIRÐI, SEYÐISFIRÐI OG VESTMANNAEYJUM.
Annast öll venjuleg bankaviðskifti innanlands og utan, svo
sem innheimtur, kaup og sölu erlends gjaldeyris o. s. frv.
Tekur á móti fé til ávöxtunar á hlaupareikning eða með spari-
sjóðskjörum með eða án uppsagnarfrests. —- Vextir eru lagðir
við höfuðstól tvisvar á ári.
Sérstök athygli skal vakin á nýtisku geymsluhólfi, þar sen)
viðskiftamenn geta komið verðmæti í geymslu utan afgreiðslu-
tíma bankans, án endurgjalds.
Ábyrgð ríkissjóðs er á öllu sparisjóðsfé í bankanum og
útibúum hans.