Sjómaðurinn - 01.06.1940, Blaðsíða 37

Sjómaðurinn - 01.06.1940, Blaðsíða 37
S JÓM AÐURINN 31 Á öðrum degi var svo farið að bjarga fiskinum og fleiru úr skipinu, og gengu Akurnesingar fram í ])ví með miklum afköstum og dugnaði og ekki varð fjörið minna er fundist liöfðu 2 tunnur af brennivini i farminum, sem fara áttu til Patreks- fjarðar. Átti að nota drykkinn í brúðkaupsveislu hjónaleysa sem ætluðu að gifta sig. Mig minnir að viðtakandi hafi heitað Backmann, en fyrra nafn- ið man eg ekki. Geir tók tunnurnar undir sina vernd en önnur hafði slegist til í lestinni er skipið strandaði og lak, voru margir sem hagnýttu sér dropánn í kuldanum. Ekki tókst að bjarga nema litlu af farmi skipsins og eftir 4 daga var skipið hrotið niður af skerinu, en þó mun eitthvað sjást eftir af leifum þess, en þann dag í dag. Björgunarskipið flutti svo okkur til Reykjavík- Ur og var okkur komið fyrir á Hótel ísland. Þar vorum við ])ar til sjóréttur liafði tekið mál okkar fyrir. Norskur konsúll var þá Tl). Klingenberg og andaðist hann i Marsailles á Frakklandi, en skrif- ari lians var Frans Zimsen, fyrverandi sýslumaður. Kent var um kompásskekkju að skipið strandaði. Þegar „Force“ strandaði var elcki kominn viti á Akranes og nú eru tímarnir svo breyttir og fram- farir svo miklar þessi 27 ár sem liðin eru, að eng- an l)efði órað fyrir því, og öryggi sjómanna stór- bætt. En óhætt er að fullyrða, að konur standa framarlcga í því að létta undir að landtaka fyrir sjófarendum verði sem hættuminst. Að endingu vil eg svo fyrir mína hönd og allra sem enn kunna að vera á lifi frá Force-strandinu, l)lessa minningu hinna látnu heiðurshjóna. Odds Guð)nundssonar og konu hans, Halldóru Guð- mundsdóttur. Síðar varð hlutskifti Odds að hljóta vota gröf ásamt syni sínum, Haunesi; druknuðu þeir í Borgarfirði í apríl 1918 á Lundhólmagranda. En öðrum syni bans Sigurði, ))ú bónda í Kaldardal í Skilamannahreppi og systrum hans færi eg mínar bestu kveðjur. Eirin minjagrip átti eg i fjöldamörg ár sem Hall- dóra húsfreyja gaf mér. Það voru ullarsokkar með hvítri fit en mórauðir að öðru leyti, og altaf þegar eg fór í þá runnu upp fyrir mér þær stundir, er Halldóra húsfreyja i Presthúsum færði mig úr sjó- blautum og frosnum sokkum og gaf mér þessa í staðinn. Mikið starf er nú hafið um land alt til stvrktar slysavörnUm, en fagurt fordæmi gáfu hjó))in í Presthúsum á Akranesi fyrir 27 árum, þegar sjóhrakta menn af gufuskipinu „Force“ frá Haugasundi bar að garði. Guðjón M. Jónsson. UTVEGSBAN Kl ISLANDS % REYKJAVÍK ÁSAMT ÚTIBtUM Á AKUREYRI, ÍSAFIRÐI, SEYÐISFIRÐI OG VESTMANNAEYJUM. Annast öll venjuleg bankaviðskifti innanlands og utan, svo sem innheimtur, kaup og sölu erlends gjaldeyris o. s. frv. Tekur á móti fé til ávöxtunar á hlaupareikning eða með spari- sjóðskjörum með eða án uppsagnarfrests. —- Vextir eru lagðir við höfuðstól tvisvar á ári. Sérstök athygli skal vakin á nýtisku geymsluhólfi, þar sen) viðskiftamenn geta komið verðmæti í geymslu utan afgreiðslu- tíma bankans, án endurgjalds. Ábyrgð ríkissjóðs er á öllu sparisjóðsfé í bankanum og útibúum hans.

x

Sjómaðurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómaðurinn
https://timarit.is/publication/714

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.