Sjómaðurinn - 01.06.1940, Page 41

Sjómaðurinn - 01.06.1940, Page 41
SJÓMAÐURINN 35 V.0£. Vorið ennþá vinnur tafl, veröld sólar nýtur; tilverunnar tvískift afl tengir bæði og slítur. Geislaböndin glittir í, glatt á söndum vaka; sær og ströndin sumarhlý saman höndum taka. MARÍUS ÓLAFSSON. Látinn f élagi. Vilhjálmur Þorsteinsson stýrimaður. í aprílmánuði síðastliðnum vildi það sorglega slys til, að Villijálmur Þorsteinsson, stýrimaður á e.s. Súðinni, drukknaði i Runeornhöfn i Eng- landi. Vilhjálmur lieit. lætur eftir sig konu og eina dóttur uppkomna. Hann var ágætur félagi í Stýrimannafél. fslands. Blessuð sé minning hans. Kreiðtir§k sigliug. Eftir Bergsvein Ólafsson, lækni. J FYRSTA tbl. Sjómannsins 1940, bls. 15, er mynd af bátum í nausti; undir mynd þessari stendur: „Seglin viðruð. Skipið stendur við Steins- kot á Eyrarbakka.“ Þar sem staðurinn, er myndin sýnir, er ekki rétt nefndur, vil eg biðja Jjlaðið að leiðrétta það við fyrstu hentugleika. Myndin er nefnilega ekki frá Eyrarbakka, heldur af bátum, nausti og hús- hin að Hvallátrum á Breiðafirði, hún er tekin af Haraldi Blöndal ljósmyndara árið 1909; liann var þá að vísu búsettur á Eyrarbakka, en ferðaðist l*m Breiðafjörð og tók víða myndir þetta ár, með- al annars þessa. Eins og glögt má sjá, eru skipin, er myndin ■sýnir, ekki með sunnlensku lagi; stefnislag má glögglega greina, sem svo sem lcunnugt er, er all- mjög frábrugðið á sunnlenslcum og breiðfirskum skipum. Þá er og seglbúnaður á skipunum, er myndin sýnir, svonefnd gaffalsigling, en hún var mest notuð á vestanverðum Breiðafirði eftir síð- ustu aldamót, og er hún notuð enn í dag þar um slóðir. Er mér ekki kunnugt, að hún liafi verið alment notuð á Suðurlandi eða við Faxaflóa. A róðrarskipum á þeim slóðum var algengust sprit- sigling, eins og sjá má af mynd siðar í sama blaði, þar sem sýnt er skip i Þorlákshöfn. Gaffalsigling- in er nokkurnvegin eftinnynd af lcútterasigling- unni, þó vantar þar bómuna, sem aldrei var liöfð á róðrarbátum, enda var hún og seglin þar með óþægilegri í meðförum og farviður allur fyrir- ferðarmeiri, ef liún var höfð. Spritsigling þektist að vísu á Breiðafirði en var sjaldgæf, og aldrei sá eg hana á stærri bátum en fjögramannafari, einstaka hafði og loggortsiglingu, og var hún mest notuð, að því er eg liygg í aftursegl á skipum meðan ráseglin, eða þverseglin, eins og þau voru oftast kölluð, voru í notkun. Þegar eg man fyrst eftir, var aðeins eilt skip í Flateyjarhreppi, er þá siglingu notaði eingöngu, þó var sá seglhúnaður

x

Sjómaðurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómaðurinn
https://timarit.is/publication/714

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.