Útvarpstíðindi - 11.03.1940, Blaðsíða 3
Frá Viðgerðarstofu útvarpsins j
jr
■ 1 1 ■
Islenzku viot< skin
Útvarpstíðindum hafa borizt ýmsar fyr-
irspurnir viðvíkjandi starfsemi Viðgerða-
stofunnar, og þá sérstaklega um hin ísl. við-
tæki, sem Viðgerðastofan smíðai
Höfum við því haft tal af Jóni Alexand-
erssyni, forstöðumanni Viðgerðastofunnar,
og beðið hann um upplýsingar. Fer hér á
eftir útdráttur úr viðtalinu.
Hvaða orsakir drógu einkum til
þess, að þér hófuð nýsmíði viðtækja
hér á Viðgerðastofunni?
Ástæðan til þess, að Viðgerðastof-
an hófst handa um smíði á viðtækjum
var sú, að eftir margra ára reynslu í
viðgerðum útvarpstækja, og þá sér-
staklega viðtækja úr smáskipum og
úr sveitum, varð okkur ljóst, að hin
venjulegu útvarpstæki, sem eru í fínt
gljáðum kössum, veikbyggð og með
þunnri einangrun, þoldu illa sjávarloft,
eða raka í köldum húsakynnum. Þess-
um fínu tækjum var einungis ætlað að
vera í þurrum, vel upphituðum íbúð-
um. Þegar slík viðtæki voru sett í
mótorbáta og smáskip, entust þau
stundum aðeins eina vertíð, og voru
alltaf ótrygg í notkun. Auk þess voru
hin erlendu rafhlöðu-viðtæki oft mjög
straumfrek, og því óhentug, þar sem
örðugt var um hleðslu. Kostnaður við
endurnýjun rafhlaðna var mjög til-
finnanlegur og tenging þeirra við við-
tækin margbrotin og ógreinileg. Ollu
því ýms mistök á tengingum slæmri
endingu á rafhlöðum og lömpum. —
Ennfremur var örðugt að fá viðtæki
fyrir þær öldulengdir, sem skipum eru
ætlaðar, nema þá mjög dýr.
Vegna alls þessa var ákveðið að
smíða langdræg skipaviðtæki og einn-
ig straumspör og ódýr þriggja lampa
rafhlöðuviðtæki. Tæki þessi voru ætl-
uð fólki á vesturhluta landsins, og
voru því nefnd „Vestri“. Þessi tæki
svara til hinna svonefndu alþýðuvið-
tækja í öðrum löndum. Er lögð sér-
stök áherzla á, að „Vestra“-viðtækin
Frá sviíðadeildinni.
Mynd frá snnOi kassanna utan um viðtækin.
Savisetning nýrra viðtækja.
ÚTVARPSTÍÐINDI
327