Útvarpstíðindi - 11.03.1940, Blaðsíða 9

Útvarpstíðindi - 11.03.1940, Blaðsíða 9
Maxim Gorki: mál, einkum nú um tíma. Þess má þó minnast, að bæði Jón Leifs og Emil Thoroddsen hafa, að undirlagi útvarpsins, gert tilraunir til þess að skýra tónlistina fyrir áheyrendum — og nú mun þessi starfsemi verða hafin aftur — einkum með haustinu — en í nolckru öðru formi en áður •— sbr. framansagt. Að því er snertir val tónverka, vil ég ekki samþykkja að okkur Guðrúnu Reykholt hafi mistekist — a. m. k. ekki að öllu leyti. Þess ber vel að gæta, að stór hópur hlust- enda kann vel að meta góða tónlist —■ og mér virðist fullt svo mikil ástæða til að taka tillit til smekks þeirra af hlustendum, sem hafa þroskaðan smekk, heldur en til hinna, er enn hafa ekki öðlazt þroska og æfingu til þess að njóta þessara verðmæta. — Svo að þér munuð þá ekki geta fallizt á þá skoðun margra, um tón- listarfluttning útvarpsins, að þar sé „of mikið af því góða“. — Hingað til hef ég viljað halda því fram, að bað bezta væri ekki of gott handa Islendingum — heldur ekki á sviði tónlistarinnar. — Að öðrum kosti langaði mig ekki til þess að vera íslendingur. Hins vegar er mér það Ijóst, að of mikið má gera af flutningi hins bezta — og að stilla beri í hóf — einkum vegna þess, að ég sannfærist æ betur og betur um það, sem ég reyndar vissi áður, — að hér er ekki samskonar grundvöllur fyrir hendi í þessu efni eins og hjá nágrannaþjóðunum. — Mun það fyrst og fremst stafa af því. að þjóðin er enn óvön að hlusta. Ég áfellizt engan, þótt hann ekki hafi hæfileika eða æfingu til þess að njóta erfiðrar tónlistar, en ég get heldur ekki fellt mig við þá gremju, sem mér virðist gæta hjá mörgum gagnvart því verðmætasta, sem við Sögur gamallar konu framhald Isergil hélt sögunni áfram: — Nú var mönnum stefnt til þings, og ýmsar tillögur komu fram um það, á hvern hátt skyldi hegna morðingj- anum og voru menn ekki á eitt sátt- ir: Sumir vildu binda hann við fjóra villihesta og láta þá slíta líkama hans í sundur á milli sín. Aðrir stungu upp á því, að hann skyldi reyrður við tré og skyldi hver bogmaður skjóta einni ör að honum og reyna að hæfa. — En þetta hvortveggja þótti of vægur dauðdagi. Einnig var rætt um, að brenna hann lifandi, — en sá var ókostur á því ráði, að reyk- urinn frá bálinu myndi koma í veg fyrir, að þeir gætu skemmt sér við að horfa á kvalir hans. Þeir gátu ekki komið sér saman um neinn dauðdaga, sem allir væru ánægðir með og allir samþykkir. Móðir hins flytjum, — gremju, sem sprottin er af því einu, að menn skilja ekki sjálfir. En mér til gleði hef ég þekkt marga, í öllum stéttum þjóð- félagsins, sem af skilningi og að- dáun tala við mig, einmitt um það bezta og njóta þess áreiðanlega, en því miður láta þessir menn skoðan- ir sínar sjaldan í ljós opinberlega. Nú bíður bíllinn eftir Páli, til að flytja hann að einni jarðarförinni, og hann fer að ókyrrast. Ég ber honum á brýn, að hann hugsi alltaf meira um þá dauðu en þá lifandi. — Já, ég má til, segir Páll (með brosi, sem er í senn hógvært og glettið), þeim dauðu verður að koma frá. Þeir kvarta heldur aldrei og spyrja minna! K. F. ÚTVARPSTÍÐINDI 333

x

Útvarpstíðindi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Útvarpstíðindi
https://timarit.is/publication/715

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.