Útvarpstíðindi - 11.03.1940, Qupperneq 12

Útvarpstíðindi - 11.03.1940, Qupperneq 12
SAGAN. Framh. af bls. 333. seka lá á knjánum fyrir framan þá og bað honum vægðar, hún átti hvorki orð né tár. Að lokum, er menn höfðu rætt málið fram og aftur, sagði hinn vitr- asti meðal þeirra: — Við skulum spyrja hann sjálf- an, hvers vegna hann hafi framið þennan hræðilega glæp. Hann var spurður, en kvaðst engu svara fyrr en þeir hefðu leyst hann úr fjötrunum. Og er það hafði verið gert, svaraði hann: — Ég myrti hana af því hún vildi ekki þýðast mig. — En hvaða rétt hafðir þú til að nálgast hana? Ekki var hún eign þín. — Allt, sem ég girnist og tek, er eign mín, svaraði ungi maðurinn. Hann var spurður margra spurn- inga og svör hans gáfu til kynna, að hann áleit sig fremri öllum öðrum mönnum og að hann viðurkenndi ekki vilja nokkurs manns, ef það braut í bága við hans eigin vilja. Og öllum hraus hugur við því hyldýpi mannvonsku og hroka, sem orð hans vitnuðu um. Og er menn komu saman á ný og ráðguðust um örlög morðingjans, sagði hinn vitri: — Ég hef fundið afbrotamannin- um hæfilega refsingu, — þá ógurleg- ustu refsingu, sem hægt er að ákveða nokkrum manni. Gefið hann frjáls- an! Látið hann lifa og vera einan með hugsanir sínar — þyngri refs- ingu getur hann ekki hlotið. Þegar hinn vitri maður hafði þetta mælt, laust eldingu niður frá himni og loftið skalf af þrumum. Þannig lögðu hin himnesku máttarvöld bless- un sína yfir orð hins vitra manns. Og allir hneigðu höfuð sín til sam- þykkis, og hver hélt heim til sín. En ungi maðurinn, sem nú var kallaður Larra — það þýðir: hinn útskúfaði — hló að þeim. Nú var hann aftur frjáls eins og örninn fað- ir hans hafði verið. Og þó hann væri skapaður sem maður, lifði hann lífi vargsins. Hann réðist inn í hjarðir byggðarfólksins og tjöld og rændi fé þeirra og konum. Hann var slunginn stigamaður, duglegur og kænn, sterk- ur og grimmur. Hann forðaðist sam- vistir við aðra menn og aðrir forð- uðust hann. Þannig lifði hann í fjölmörg ár, þar til hann að lokum varð svo þreytt- ur á einverunni og kuldanum, sem nagaði brjóst hans, að hann sneri aftur til manna. Hann gat ekki losn- að við þá tilfinningu, að hann væri þó, þrátt fyrir allt, maður, og það er ekki manninum eðlilegt að vera einn. En þegar byggðarfólkið sá hann koma, þekkti það í honum sinn mikla óvin, og réðist að honum og ætlaði að drepa hann. En er hann gerði enga tilraun til að verja sig, minnt- ust menn hins mikla dóms — refs- ingarinnar — sem honum hafði ver- ið ákveðinn, og þeir hrópuðu: — Snertið hann ekki! — Hann vill deyja! Og allir sneru við honum bak- inu eða hlógu að honum. En er hann heyrði hlátur fólksins, gljúpnaði hann. Honum varð ljóst, að það hefði get- ið sér rétt til um, hvað hrærðist innst í sál hans —, að menn höfðu lesið í augum hans viðbjóð hans sjálfs á líferni sínu. Hann greip til steina og grýtti á eftir þeim, en þeir véku sér undan og köstuðu ekki á móti. Þá dró Larra hníf sinn úr skeið- um og rak hann í brjóst sér, en blað hnífsins stökk sundur í marga hluta eins og honum hefði verið stungið í grjóthellu, — svo lagið sakaði ekki. Þá varpaði hann sér til jarðar og sló höfðinu við steinana, en það var 336 ÚTVARPSTÍÐINDI

x

Útvarpstíðindi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Útvarpstíðindi
https://timarit.is/publication/715

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.