Útvarpstíðindi - 20.10.1941, Blaðsíða 5
hugsanir sínar í stuttu gagnorðu og
ljósu formi. Eitt af því, sem við eig-
um við að stríða, er það, að sumum
iiættir til að semja erindi sín eins
og greinar í tímarit, þeir taka of mik-
ið með af aukatriðum í upphafi máls-
ins og verða svo að fella af áður en
þeir liafa gert aðalatriðunum full
skil, því útvarpserindi mega ekki vera
hing. Þeir, semtstundum eru kallað-
ir vinsælir menn í útvarpinu, eiga
vaíalaust vinsældir sínar að þakka
því, að þeim tekst að sigla fram hjá
þessu skeri.
Það mætti líka telja það fram sem
cinn örðugleikánna á vegi útvarpsins
okkar, að litil rækt hefur verið lögð
við ræðuflutning og framsetningu í
rnæltu máli í menntastofnunum lands-
ins. í þessu efni ætti útvarpið smám
saman að geta áorkað töluverðy til
lagfæringar. í raun og veru ætti eng-
inn að fá að flytja erindi í útvarp í
fyrsta skipti, án þess að liafa áður
verið vandlega æfður og gagnrýndur
af duglegum talkennara, sem jafn-
framt færi vandlega yfir handritið
og færði framsetninguna sem næst
mæltu máli. En á meðan ekki eru
einu sinni til neinar reglur um fram-
burð á íslenzku máli, en hver syngur
með sínu nefi, er þetta ekki auðvelt
í framlvvænid. E. t. v. verður þess
ekki langt að bíða, að nokkuð rætist
úr þessu hjá okkur. En eftir þeirri
reynslu, sem ég hef haft af útvarps-
starfseminni hér á landi í þessi 10
ár, sem Ríkisútvarpið hefur starfað,
geri ég mér engar vonir um að minná’
en lieilan mannsaldur þurfi til þess
að koma þessum málum í viðunandi
horf.
— Teljið þér ekki að ol’ litlu fé sé
Guðm. fíöðvarsson:
Ný bók
vænlanleg
innan skamms
Guðmundur Böðvarsson birti
fyrstu kvæði sín á víð og dreif i tíma-
ritum og blöðum. Þótti þegar sýnt,
að hann hafði hylli skáldgyðjunnar.
Nú hefur hann gefið út tvær ljóða-
bækur og náð almennri viðurkenn-
ingu, sem eittliveit bezta og snjall-
asta skáld hinnar yngri kynslóðar.
Guðmundur er upprunninn Borgfirð-
ingur og býr nú á óðali sínu, Kirkju-
bóli í Borgarfirði. Bækur hans eru:
„Kyssti mig sól“ og „Hin hvítu
skip“. — Á kvöldvökunni þ. 20. okt.
les Árni prófessor Pálsson upp úr
þessum ljóðabókum Guðmundar.
Ný ljóðabók er væntanleg innan
skamms eftir Guðm. Böðvarsson.
varið til dagskrárstarfseminnar, og
að með auknum fjárframlögum mætti
gera dagskrána betur úr garði?
— Ég held, að fjárskortur sé ekki
versti þröskuldurinn á vegi út-
varpsins, nema þá að því leyti, að við
hefðum þörf fyrir fleiri fasta starfs-
menn til að vinna að dagskránni, en
að öðru leyti býst ég ekki við að út-
varpið breytti mjög um svip, þó að
það hefði helmingi meira fé til um-
ráða en það hefur nú. í>að eru til
hlutir, sem ekki er hægt að kaupa
fyrir peninga,
ýTVARPSTÍÐINDJ