Útvarpstíðindi - 20.10.1941, Blaðsíða 13
Síra Hallgrímur Pétursson
Nú líður senn að þeim degi, sem
talinn er dauðadagur Ilallgríms, 27.
október. Við þáð reikm- hugurinn ó-
sjálfrátt til þessa mikla manns, sem
er mesta trúarskáld íslenzku þjóðar-
innar í fortíð og nútíð, sem drakk
liinn beiska bikar jarðneskra harma,
en óx að sama skapi hið innra, sv<j
að liann gat helsjúkur ort ódauðleg
dýrðarljóð um sigur lífsins yfir dauð-
anum, þess vegna segir séra Matt-
Iiías um hann:
1 lér er skáld með Drottins dýrðarljóð
djúp, svo djúp sem líf i heilli þjóð;
blíð — svo blíð, að heljar-húmið
svart,
livar sem stendur, verður engilbjart.
Og þó að margskonar veraldlegur
kveðskapur liggi eftir Ilallgrím, þá
virðist sá skáldskapur fyrst og
fremst vera þjálfun og aðdragandi
hins andlega kveðskapar hans, þar
sem andi hans kemst hæst.
Á Hvalsnesi missti hann dóttur
sína, Steinunni, á 4. aldursári og hef-
ur Ilallgrímur ort tven neftirmæli
eftir hana. Hann segir þar um hana:
Unun var augum mínum
ávalt að líta’ á þig,
með ungdóms ástum þínum
ætíð þú gladdir mig
rétt yndis-elskulig,
auðsveip, af hjarta hlýðug,
í harðri sótt vel líðug,
sem jafnan sýndi sig.
Næm, skynsöm, ljúf í lyndi
lífs meðan varstu hér
eftirlæti og yndi
ætíð hafði’ ég af þér,
í minni muntu mér;
því mun ég þig með tárum
þreyja af huga sárum,
heim til þess héðan fer.
Þessi tvenn eftirmæli eru svo inni-
leg, að þau eru einskonar fyrirboði
að þeim trúarlega innileik og dýpt,
sem Passíusálmarnir eru þrungnir af,
enda hefir verið talið, að Passíusálm-
arnir og Alt eins og blómstrið eina,
sé að miklu leyti ort af þessum sökn-
uði.
Legsteinn Steinunnar með gral’-
letri, höggnu af Hallgrími sjálfum,
var til á Hvalsnesi fyrir eða um síð-
ustu aldamót, svo sagði mér fóstri
minn, Ketill í Kotvogi.
Þegar Hallgrímur hætti námi og
gengur út í lífið með Guðríði, þá yrk-
ir hanri, þegar þau fara til íslands
vorið 1637:
Ég byrja reisu mín,
Jesú, í nafni þín,
höndin þín helg mig leiði,
úr hættu allri greiði o. s.'frv.
Og síðast yrkir hann i banaleg-
unni:
Guð komi sjálfuv nú með náð,
nú sjái Guð mitt efni’ og ráð,
nú er mér, Jesú, þörf á þér,
þér hefi’ ég treyst í lieimi hér.
Þannig var trú hans alla tíð.
Nú á að reisa tvær Hallgrímskirkj-
ur á næstu árum hér á landi, og eitt
stærsta prestakall landsins ber nafn
útvárpstíðindi
13