Útvarpstíðindi - 30.06.1947, Side 15

Útvarpstíðindi - 30.06.1947, Side 15
OTVARPSTIÐINDI 279 strax að spyrja, hvort Álfur væri kominn. Þá skildu menn hvers kvns var. Hún sat alla nóttina á sama bekknum og dansaði ekki neitt. Svo fór hún heim. Enginn sá nein geð- brigði á henni. En eftir þetta fór hún að sækja hverja skemmtun í nágrenninu. Fyrst í stað spurði hún alltaf eftir Álfi, svo hætti hún því, sat bara og horfði á fólkið, sljóum augum. Árin liðu. Foreldrar hennar dóu, og þá fór hún að flakka um sveitina, var nokkurn tíma á hverjum bæ. Hún var vel verki farin og vann við heimilisstörf á þeim bæjum., þar sem hún dvaldi í hvert skipti, svo það var ekkert amazt við henni. Hún hafði fengið dálítinn arf, og notaði hann eingöngu til þess að kaupa föt og ýmsa skartgripi. Skemmtanir sótti hún, hvar sem hún frétti til þeirra í nágrenninu. En svo hætti hún að láta sér nægja að sitja og horfa á. Hún vildi taka þátt í glaðværðinni sjálf. En það var orð- ið of seint. Ungu piltarnir komu sér hjá því að dansa við hana, eftir því sem þeir gátu, en því fastar sótti hún á. Það var eins og hún hefði ekki orðið þess vör, að æskan var horfin frá henni, og aldrei vildi hún dansa við aðra en unga menn. Eldri mennirnir, sem alizt höfðu upp með henni, buðu henni stundum í dans. Hún þáði það, en með þótta- fullu lítillæti. Þess varð í engu vart, að hún kannaðist við þá, sem gamla félaga. Þetta er nú sagan af henni Siggu gömlu“. Ég þakkaði frænku minni söguna og kaffið, og fór út að sinna hey- verkum. En ég gat ekki að því gert, að hugurinn hvarflaði til Siggu, og ég sá hana, þar sem hún gekk að auðum bekknum um nóttina, lítil og lotin. En þessi áhrif hurfu brátt fyrir öðrum nýjum og skemmtilegri. Það réðist svo, að ég yrði um vet- urinn hjá frænku minni. Mér líkaði vel í sveitinni, og prest- urinn ætlaði að hressa svolítið upp á lærdóm minn, áður en ég héldi lengra á menntabrautinni. Milli jóla og nýárs var aftur hald- inn dansleikur í ungmennafélagshús- inu. Ég fór að sjálfsögðu þangað, ekki veitti af að hrista af sér bóka- rykið, sem farið var að hlaðast á mig. Nokkru eftir að dansinn byrjaði kom Sigga. Hún hafði orðið heldur sein fyrir. Færð var ekki góð, og hún var gangandi. Það var hún allt- af. — Það var gáski í mér. Dísa á Hóli hafði verið óvenjulega ástúðleg við mig, og ég sveif á rósrauðum skýjum vonarinnar. „Heyrið þið, strákar", sagði ég við Steina, og nokkra fleiri, sem hjá okk- ur stóðu. „Eigum við að reyna það, hvort Sigga gamla klárar sig af því að dansa í alla nótt?“ Þeim fannst þetta prýðileg hug- mynd, og fyrirtækið var strax skipu- lagt. Hver átti að taka við af öðr- um, eftir stafrófsröð. Steini var íyrstur, liann hét Aðalsteinn, og ég var annar. Og svo byrjuðum við. Um leið og hver lauk sínum dansi, tók sá næsti við. Stundum þeyttum við lienni helzt til ákaflega um gólf- ið, en hún virtist taka því með mestu ánægju. Þegar fyrstu umferðinni var að verða lokið, náði ég í Dísu á Hóli.

x

Útvarpstíðindi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Útvarpstíðindi
https://timarit.is/publication/715

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.