Útvarpstíðindi - 30.06.1947, Side 17

Útvarpstíðindi - 30.06.1947, Side 17
ÚTVARPSTÍÐINDI 281 hliðinni á mér. Hann titraði ögn. Það var víst satt, hún var þreytt. Það var fremur stutt leið að prests- setrinu. Við gengum í hægðum okk- ar, mösuðum og hlógum. En Sigga sagði ekki neitt. í þetta skipti dvaldi hún á bæ, nokkru fram- ar í sveitinni. Við buðum henni að vera á prestssetrinu um nóttina, en það vildi hún ekki. Við létum hana ráða. Það var heldur ekkert að veðri, að vísu nokkurt frost, en þetta var greiðfær og auðrötuð leið. „Þakka þér fyrir“, sagði hún um leið og hún kvaddi mig, „og vonandi látum við okkur ekki vanta á næstu skemmtun“. Ég staldraði ögn við á hlaðinu og horfði á eftir henni, þar sem hún tifaði fram snæþaktan melinn, lítil og umkomulaus. Hún virtist renna saman við dríf- una, og myrka vetrarnóttina, unz hún hvarf að fullu. Ég fór inn og háttaði. Brot úr danslögum næturinnar ómuðu fyrir eyrum mér, og ég hugsaði um Dísu á Hóli. Svo sofnaði ég. Frænka mín vakti mig morguninn eftir. „Þá hefur nú Sigga gamla loksins fengið friðinn“, sagði hún. „Hvað meinarðu? Er hún dáin?“ „Já, hún varð úti í nótt“. „En var ekki bezta veður?“ „Jú, en hún hefur víst verið þreytt. Hún liafði setzt niður undir steini hérna frammi á melunum, og sofnað. Þar fundu piltarnir hana í morgun. Hún liggur hérna frammi í fremstu stofunni“. Mér brá ónotalega við í fyrstu. Ég klæddi mig, en. það var einhver órói í mér. Mér fannst, að ég yrði endilega Happdrœtti Háskóla Islands Dregið verður í 7. flokki 10. júlí. — 500 vinningar og tveir aukavinningar. Vinningaupphæðin er kr. 166 þúsund. Dragið ekki að endurnýja. Happadrætti Háskóla íslands

x

Útvarpstíðindi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Útvarpstíðindi
https://timarit.is/publication/715

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.