Starfsmannablað Reykjavíkur - 01.07.1938, Page 11

Starfsmannablað Reykjavíkur  - 01.07.1938, Page 11
STARFSMANNABLAÐ REYKJAVlKUR 3 Yfirhöfuð hefur Starfsmannafélag Reykjavíkur farið hóflega í að gera kröfur til launahækkana fyrir hönd starfsmanna bæjarins. Miklu frekar hefur stjórn félagsins á undanförnum árum reynt að jafna ágreiningsmálin með lægni og lipurð. Fyrir afskipti þá- verandi stjórnar félagsins tókst að leysa hina svokölluðu Gasstöðvardeilu á við- unandi hátt, og hefði tekizt fyrr, og áð- ur en til nokkurra vandræða kom, ef stjórnin hefði verið kvödd til ráða þeg- ar í byrjun deilunnar. Yfirlitsins vegna er rétt að geta þess, að það voru ein- mitt starfsmenn Gasstöðvarinnar, sem fyrst kveinkuðu sér undan ósamræmi launasamþykktarinnar frá 1919 og vax- andi dýrtíðar. Á árunum 1935 og 1936 senda þeir stjórn Starfsmannafélagsins hvað eftir annað kvartanir sínar og tekst stjórn félagsins að bæta úr vand- ræðum þeirra að nokkru með hækkuð- um fatastyrk. Það er einnig starfsmað- ur Gasstöðvarinnar, hr. Jón Halldórs- son, sem stingur upp á því á félags- fundi 16. des. 1935, að félagsstjórnin fari fram á það við bæjarstjórn, að fé væri lagt til hliðar í því augnamiði að mæta launahækkunarráðstöfunum vegna mjög aukinnar dýrtíðar. Þetta var þó talið vandkvæðum bundið, þar sem bæjarstjórn var í þann veginn að ganga frá fjárhagsáætlun 1936, og var ekki frekar að gert. Og það er enn út af síendurteknum erindum kyndara við Gasstöðina um bætt launakjör, að stjórn félagsins ræddi við borgarstjóra 11. nóv. 1936 um launakjör starfs- manna bæjarins almennt. Taldi borg- arstjóri þá ekki ólíklegt, að þetta mál yrði tekið til athugunar á næst- unni og kvað sig mundi fúsan til að hafa samvinnu við Starfsmannafélag Reykjavíkur um allan undirbúning málsins. Þegar hér er komið sögu, er launa- málið komið á það stig, að stjórn St. R., fyrir hönd félagsins, og borgarstjóri, fyrir hönd bæjarstjórnar, hafa talast við um heppilega lausn málsins og snýr nú stjórn St. R. sér að undirbúningnum með eftirfarandi samþykkt, sem gerð er á félagsfundi 20. nóv. 1936: Starfsmannafélag Reykjavíkur lieimilar stjórn sinni að greiða fé úr félagssjóði til undirbúnings til- lögum um launakjör fastra starfs- manna bæjarins. Tillaga þessi var samþykkt á fund- inum með 32 atkvæðum gegn 1. For- maður, hr. Nikulás Friðriksson, mælti með tillögunni og kvað hana framkoma frá stjórn félagsins vegna þess, að full ástæða væri til að ætla, að bæjarstjórn léti taka launakjör starfsmanna bæjar- ins til rækilegrar yfirvegunar á næsta ári, og kvað þess vegna nauðsynlegt, að stjórn St. R. yrði þá búin að rannsaka málið og undirbúa vandlega, til að geta lagt strax fram sínar tillögur. Til að þetta gæti tekist sem bezt, þyrfti að safna skýrslum frá hinum ýmsu starfs- greinum bæjarfélagsins og taka til hlið- sjónar nýjar erlendar fyrirmyndir í þessu efni, og ennfremur þyrfti að vinna úr fyrri tillögum Starfsmannafélagsins til bæjarstjórnar í launamálum (1929). Til að framkvæma þetta á fullkomlega viðunandi hátt, kvað hann það álit stjórnarinnar, að nauðsynlegt væri að fá hæfan mann til þess að framkvæma verkið og væri því farið fram á fjár- veitingu í þessu skyni. Að launamálið yfirhöfuð var komið á þetta stig, að samtöl höfðu farið fram

x

Starfsmannablað Reykjavíkur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Starfsmannablað Reykjavíkur
https://timarit.is/publication/718

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.