Starfsmannablað Reykjavíkur - 01.07.1938, Blaðsíða 12

Starfsmannablað Reykjavíkur  - 01.07.1938, Blaðsíða 12
4 STARFSMANNABLAÐ REYKJAVlKUR milli beggja aðila, verður að nokkru leyti rakið til þess, að það var nú lýð- um ljóst, að mjög mikið ósamræmi ríkti milli launagreiðslu hinna ýmsu stofn- ana bæjarins og að síðustu árin hafði fjölda mörgum starfsmönnum verið bætt við og ætluð laun utan og ofan við launaflokkana, af þeirri einföldu ástæðu, að engir hæfir menn hefðu feng- izt til hinna ýmsu starfa með þeim byrj- unarlaunum, sem launaflokkarnir gerðu ráð fyrir. Það var þó svo, að mikil tregða var á því í bæjarstjórn, að gengið yrði end- anlega að verki um endurskoðun launa- samþykktarinnar. Á aðalfundi 18. apríl 1937 getur formaður St. R. ekki svar- að framkominni fyrirspurn um gang launamálsins á annan veg en þann, að félagið hafi enn ekki fengið formlega viðurkenningu sem samningsaðili í launamálinu, heldur hafi borgarstjóri aðeins orðað það við formann, að sam- vinna yrði með bæjarstjórn og Starfs- mannafélaginu um lausn málsins. Á þessum fundi lagði einn félagsmanna, hr. Jóhann G. Möller, fram eftirfarandi tillögu, sem snertir eina hlið launasam- þykktarinnar: „Fundur í St. R. skorar á stjórn félagsins að sjá um, að þeir starfs- menn bæjarins, sem teljast fastir starfsmenn og ekki liafa þegar fengið skipunarbréf fyrir stöðum sínum, fái það sem fyrst.“ Tillöguna fluttu, ásamt Jóhanni G. Möller, 10 starfsmenn Rafveitunnar og var hún samþykkt. Á sama fundi var samþykkt áskorun á stjórn félagsins um að halda fund innan 7 daga, þar sem rætt yrði um launamál starfsmanna bæjarins. Einnig þessa tillögu fluttu nokkrir starfsmenn Rafveitunnar. Það er þó ekki fyrr en á stjórnarfundi 4. maí 1937, að hr. Árni Björnsson hag- fræðingur er ráðinn til að undirbúa til- lögu um launakjör starfsmanna bæjar- ins í samræmi við samþykktina frá 20. nóv. 1936, og á stjórnarfundi 20. maí 1937 var í fyrsta skipti rætt um mögu- leikana fyrir því að gera ákveðnar kröf- ur á hendur bæjarstjórn vegna sívax- andi dýrtíðar. Fallið var þó frá að setja fram kröfur að svo stöddu, meðan ekki lægi fyrir tillögur frá ráðunaut stjórn- arinnar í þessu efni, hr. Árna Björns- syni, og sérstakur fundur um launamál- ið var ekki haldinn af sömu ástæðum. Skylt er að geta þess, að það tafði mjög fyrir umræðum um launamálið á fundum félagsins, að mjög gagngerðar breytingar voru gerðar á lögurn félags- ins um þessar mundir og deildu menn ákaft um breytingarnar, svo lítill tími vannst til að sinna launamálinu á fund- um. Þá voru menn og ákaflega bjart- sýnir á, að bæjarstjórn mundi hraða endurskoðun launasamþykktarinnar og hafa lokið endurskoðuninni í síðasta lagi fyrir bæjarstjórnarkosningar, sem fram áttu að fara í janúar 1938. Af þessum sökum var á framhaldsaðal- fundi 1. júní 1937 feld tillaga frá hr. Jóni Halldórssyni, sem hneig í þá átt, að fara fram á það við bæjarstjórn og bæjarráð, að dýrtíðaruppbótin fyrir það ár yrði hækkuð til samræmis við aðal- vísitölu ársins 1936. Þeir, sem töluðu gegn tillögunni, létu það ótvírætt í ljós, að hún væri framkomin á óheppilegum tíma, þar sem yfir stæði endurskoðun launasamþykktarinnar. Þessi trú varð þó fyrir alvarlegum hnekki, þar sem engin endurskoðun fór fram önnur en sú, sem fólst í starfi ráðunauts Starfs-

x

Starfsmannablað Reykjavíkur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Starfsmannablað Reykjavíkur
https://timarit.is/publication/718

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.