Starfsmannablað Reykjavíkur - 01.07.1938, Page 16

Starfsmannablað Reykjavíkur  - 01.07.1938, Page 16
8 STARFSMANNABLAÐ REYKJAVlKUR lagningamaður í Gasstöð Rvíkur, átti fimmtugsafmæli 20. þ. m. Þorvarður er einn af þeim, sem lengst hafa verið í þjónustu bæjarins, hann byrjaði í Gas- stöðinni í aprílmánuði 1910. Hann er fæddur í Þóroddarkoti á Álftanesi, for- eldrar: Guðmundur Lárusson, þar bú- andi, og kona hans, Steinunn Sigurðar- dóttir. — Blaðið óskar honum allra heilla á fimmtugsafmælinu. málsins, því það var í launanefndinni, sem fyrst var rætt um möguleika fyrir blaðútgáfu, til þess að halda fram rétti Starfsmannafélags Reykjavíkur. Þessum rétti hefur Starfsmannafélag Reykjavíkur síður en svo fyrirgert í rekstri launamálsins, með háværum kröfum og eftirgangsmunum. Það hef- ur staðið fast á rétti sínum í allri hóg- værð og það er von vor og trú, að svo framarlega sem starfsmenn bæjarins skipa sér þétt saman um sín réttinda- mál, þá muni þau vinnast að lokum. Sta rfsmannafélag Reykjavíkur 10 ára. Kvæði þetta orkti Kjartan Ólafsson brunav. er starfsm.fél. varð tíu ára og flutti hann það á afmælisfagnaði þess. Þér tíu ára sigursveig skal flétta. Við settum okkur gott og fagurt mið, við erum þjóð með strengi allra stétta, og stefnum fram með djarft og hugað lið. Því mörgu þarf á betri veg að breyta og byggja upp ef menning ræður för. Við erum öll að sama láni að leita: að lifa við sem bezt og sælust kjör. Það er svo oft, að menn um skoðun skilur og skilning vantar til að geta sætzt. Og fyrir mörgum hatrið útsýn hylur, svo hinir beztu kraftar fá ei mætzt. En það er böl, sem þungu stríði veldur og þjóðir mega gjalda fyrr og síð. Því er oss lán og gæfa að geta heldur með góðu ríkt og sigrað alla tíð. Og þetta félag sanni í sínu verki að samtök geta langt til heilla náð, og það skal lyfta lands og þjóðar merki og leysa hverja þraut með festu og dáð. Við elskum þig, þú borg, við bláa ósa. Þar börnin vona, er ljúfust sólin skín, og enginn myndi fegri framtíð kjósa en fá að auðga þig með störfum sín.

x

Starfsmannablað Reykjavíkur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Starfsmannablað Reykjavíkur
https://timarit.is/publication/718

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.