Starfsmannablað Reykjavíkur - 01.07.1938, Síða 22

Starfsmannablað Reykjavíkur  - 01.07.1938, Síða 22
14 STARFSMANNABLAÐ REYKJAVÍKUR mættu þar 10—12 menn. Á þessum undirbúningsfundi var samþykkt að boða á fund alla fasta starfsmenn bæj- arins, til þess að ræða og taka ákvörð- un um stofnun starfsmannafélags, og nefnd kosin til þess að boða fundinn og semja frumvarp til laga fyrir hið vænt- anlega félag. I nefndinni voru: Ágúst Jósefsson, Erlingur Pálsson og Jón Egilsson. Hinn 10. janúar 1926 boðaði nefndin til fundar í Iðnó uppi, og sóttu hann 50 manns. Ég stjórnaði fundinum og var frummælandi, en fundarritari var Sig- urður Jóhannesson, nú afgreiðslumað- ur Alþýðublaðsins, en hann var þá inn- heimtumaður hjá Rafmagnsveitunni. Fyrir fundinum lá frumvarp til laga fyrir félagið. Eftir nokkurar umræður um stofnun félagsins og lagafrumvarp- ið, var samþykkt að fresta fundinum, til þess að menn gætu kynnt sér laga- frumvarpið o. fl., og samþykkt að halda framhaldsfundinn hið allra fyrsta. Hinn 17. janúar 1926 var framhalds- fundur settur í Iðnó uppi. Á þeim fundi var lagafrumvarpið samþykkt með óverulegum breytingum, og stjórn kos- in. Fyrsta stjórn félagsins var þannig skipuð: Formaður: Ágúst Jósefsson, heilbrigðisfulltrúi. Féhirðir: Jón Egilsson, bókhaldari í Gasst. Ritari: Sigurður Jóhannesson, innheimtum. Meðstjómendur: Erlingur Pálsson, yfirlögregluþjónn. Nikulás Friðriksson, umsjónarmaður. Varastjórn: Karl Ó. Bjarnason, brunavörður. Karl Guðmundsson, lögregluþjónn. Ágúst Pálmason, innheimtumaður. Endurskoðendur: Sigurður Þorkelsson, hreinsunarm. Páll Árnason, lögregluþjónn. Fyrsta grein félagslaganna hljóðar svo: Félagið heitir: Starfsmannafélag Reykjavíkurbæjar. Önnur grein: Tilgangur félagsins er: að efla samvinnu með öllum föstum starfsmönnum Reykjavíkurbæjar, og láta sér ant um allt það, er þeim er til hagsmuna, svo sem: a. Launakjör. b. Tryggingar gegn veikindum og slysum. c. Ellistyrk og eftirlaun. d. Vinnutíma og vinnutilhögun. e. Aukna menntun og þekkingu fé- lagsmanna. Þriðja grein: Inngöngu í félagið geta allir fengið, sem taka föst laun úr bæj- arsjóði Reykjavíkur, eða stofnunum þeim, sem tilheyra Reykjavíkurbæ. Þessum greinum laganna hefir ekki verið breytt síðan þær voru samþykkt- ar á stofnfundi félagsins, sem telst vera 17. janúar. Félagið var fremur fámennt í byrjun, því ekki var laust við, að nokkurrar andúðar gætti í garð þess úr ýmsum áttum, og réði þar nokkru um stefnu- skráin í 2. gr. félagslaganna, sem sum- um þótti þá full freklega orðuð. Vegna þess, að ég var formaður félagsins, sló stundum í brýnu milli mín og ýmsra manna, sem af þessum og öðrum ástæð- um voru fremur andstæðir félaginu. En allt jafnaðist það með tímanum, og hafa margir af þessum mönnum síðar orðið hinir beztu styrktarmenn félagsins. Og það kom líka á daginn, að enginn þurfti neitt að óttast, því starfsemi félagsins var hagað þannig, að áhugamál þess gengju smátt og smátt fram með vin-

x

Starfsmannablað Reykjavíkur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Starfsmannablað Reykjavíkur
https://timarit.is/publication/718

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.