Starfsmannablað Reykjavíkur - 01.07.1938, Side 25
STARFSMANNABLAÐ REYKJAVÍKUR
17
og mótorbát yfir voginn, en vafalaust
verður þess skammt að bíða, að reglu-
legar ferðir takist yfir voginn, þó ekki
væri nema til að stytta leiðina á hinn
vinsæla skemmtistað að Eiði.
Að landinu fengnu eða vilyrði um það,
leitaði félagið útboðs á byggingu allra
bústaðanna í einu eftir teikningu, sem
fengin væri áður með samkeppni. Bú-
staðirnir yrðu 2—3 herbergja með eld-
húsi og geymslu. Ef allir bústaðirnir
væru byggðir í einu, mætti spara stór-
lega á efniskaupum, vinnu og flutnings-
kostnaði og er ekki langt úr vegi að
áætla kostnað við hvern bústað, án eld-
unartækja, kr. 1000—1200. Helming
kostnaðar leggðu félagsmenn fram, en
helmingur lánsfé, sem vafalaust fengist
með bæjarábyrgð.
Með samtökum um þetta velfarnaðar-
mál geta starfsmenn bæjarins unnið
sjálfum sér og sínum nánustu mikið
gagn hvað heilsuverndun og hollustu
viðvíkur. Þeir myndu og geta framleitt
talsvert af garðávexti, sem gæti orðið
góður forði til vetrarins. Bústaðirnir
með ræktuðu landi umhverfis myndu og
bæta þann fríða svip ræktunar og þrifn-
aðar, sem er að komast á nánasta um-
hverfi bæjarins, og ef vel tiltækist,
myndi stofnun byggingarfélagsins opna
öðrum bæjarmönnum leið til þess að
njóta sólar í gróanda sumarsins.
L. S.
Grein um lögregluna.
í næsta blaði birtist grein eftir hr.
Erling Pálsson yfirlögregluþjón um lög-
reglu bæjarins.
Pétur Ingimundarson
sextugur.
Það er ánægjulegt að geta minnst
þess, í fyrsta tölublaði Starfsmanna-
blaðsins, að einn af þekktustu og vin-
sælustu starfsmönnum Reykjavíkur-
bæjar hefir nýlega haldið upp á merk
tímamót á æfi og í starfi.
Þessi starfsmaður er Pétur Ingi-
mundarson, slökkviliðsstjóri, sem varð
sextugur þann 6. júlí, og átti hann um
líkt leyti tuttugu ára afmæli sem fast-
ur starfsmaður bæjarins, en hafði þó
þar áður starfað um önnur tuttugu ár
í slökkviliðinu, eða allt frá því hann
fluttist til bæjarins árið 1898.
Pétur Ingimundarson hefir til að bera
alla eiginleika hins góða opinbera
starfsmanns. Hann er djarfur, en þó
gætinn í starfi sínu. Hann fylgist vel
með kröfum tímans og þörfum bæjar-
félagsins, og það er aðdáunarvert