Jazzblaðið - 01.02.1948, Side 12
Svavar Gests:
FRÉTTIR FLEIRA
Elliot Lawrance er að líkindum yngsti
hljómsveitarstjóri Bandaríkjanna með stóra
hljómsveit. Hann er aðeins 22 ára og byrj-
aði með hljómsveitina tæplega tvítugur og
er hún í stöðugri framför, enda er útsetn-
ingar allar hinar fullkomnustu. Elliot leik-
ur á píanó og er stíll hans ekkert ósvip-
aður stíl Claud Thornhill. Claud eins og
margir vita hefur leikið með Benny Good-
man, Glenn Miller og mörgum fleiri fræg-
um hljómsveitum. Hann stofnaði eigin
hljómsveit rétt fyrir stríðið, en fór svo
í flotann og hafði eigin hljómsveit þar.
Er stríðinu lauk stofnaði hann aftur hljóm-
sveit, sem hefur náð fádæma vinsældum
og varð nr. 2, sem „sweet band“ í Down-
Beat kosningunum 1947.
Victor bróðir Guy Lombardo stofnaði
hljómsveit fyrir rúmu ári. Margir álytu,
þar sem Victor hafði lengi leikið með Guy
að hljómsveitin yrði eins og hljómsveit
stóra bróður, en svo fór nú ekki. Victor
er með hina skemmtilegustu swinghljóm-
sveit, sem vel er hlustandi á.
Lou Fromm, sem í nokkur ár hefur leik-
ið á trommur hjá Harry James er nú
alveg hættur að leika. Hann sást í öllum
þeim mörgu kvikmyndum, sem hljómsveit-
in kom fram í síðari árin.
Ziggy. Trompetleikarann Ziggy Elman,
sem leikið hefur af og til undanfarin ár
með Tommy Dorsey, kannast flestir við.
En færri eru þeir, sem heyrt hafa talað
um náunga að nafni Ziggy Elmer, sem
nú leikur á trombón í hljómsveit Harry
James, og er þar „stórt nafn“.
Jazz-kennsla. Fyrir nokkru tók til starfa
skóli í Bandaríkjunum, þar sem aðaláherzl-
an er lögð á kennslu í jazz. Kennarar eru
allt gamalkunnir og þrautreyndir jazzleik-
arar. Öðru hvoru eru fluttir fyrirlestrar
um jazz og til þess fengnir starfandi jazz-
leikarar svo sem Charlie Venturo og fleiri.
Það tíðkast talsvert í U.S.A. að hljóðfæra-
leikarar snúi sér að kennslu er þeir hætta
að leik og er hinn frægi Dixieland trombón-
leikari Miff Mole einn þeirra. Sam Moro-
wits, sem nú leikur fyrsta sax hjá W.
Herman kenndi allt síðastliðið ár. Píanó-
leikarinn Mel Powell fékkst eitthvað við
kennslu í lok ársins og guitarleikarinn
Irving Ashby í King Cole tríóinu kenndi
aðallega áður en hann -byrjaði hjá Cole.
Hy White, sem lengi vel lék hjá Herman
hefur einnig fengizt við kennslu.
Charlie Barnet hljómsveitin er nú í mikl-
um uppgangi og er það ef til vill mikið
að þakka góðum útsetningum, en þær gerir
Neil Hefti, sem nú er hættur að leika
(vonandi aðeins í bili). Hann útsetti og
lék áður á trompet hjá Herman. Dick
Shannahan leikur nú á trommurnar hjá
Barnet.
Barney Spieler tók við bassasætinu í
12 SazzlLM