Jazzblaðið - 01.02.1948, Blaðsíða 13
hljómsveit Jimmy Dorsey, er Johnny Frigo
hætti. Hinn nítján ára trommuleikari Karle
Kiffe hefur til skamms tíma verið aðal-
stjarna hljómsveitarinnar. Áður en hann
fór til Jimmy var hann með eigin ungl-
ingahljómsveit í Hollywood og kom hún
mikið fram í kvikmyndum. Karle er ný-
hættur hjá Dorsey og tók Charley Perry
við.
Trompetleikarinn Louis Armstrong og
trombónleikarinn Jack Teagarden eru sam-
an með smáhljómsveit, sem mikið er rætt
um þessa dagana í Bandaríkjunum, enda
er hún fram úr hófi góð. í henni eru auk
framangreindra Barney Bigard klarinett,
Sid Catlett trommur, Dick Carey píanó og
Morty Corb bassi.
Hitt og þetta. Count Basie átti 40 ára
afmæli og 12 ára hljómsveitarstjóra af-
mæli rétt fyrir áramótin. — Larry Clinton,
sem stjórnaði einni af þekktari swing-
hljómsveitum fyrir 1940, hefur nýlega
stofnað hljómsveit. Trommuleikarinn Alvin
Stoller, sem þekktur varð fyrir leik sinn hjá
Tommy Dorsey er hjá honum. — Freddie
Webster trompetleikari og útsetjari (hann
lék hjá Earl Hines og Jimmy Lunceford)
dó í haust. — Hljómsveitarstjórinn og
trompetleikarinn Erskine Hawkins var ekki
alls fyrir löngu sæmdur nafnbótinni „Doct-
or of music“ við Alabama State College. —
„Adam blew his hat“, er einhver nýjasta
platan með Lionel Hampton hljómsveítinni
og einhver sú bezta, sem þeir hafa leikið
inn á í langan tíma. — Um leið og altó-
saxafón-leikarinn Johnny Bothwell slcyldi
við konuna, leisti hann upp hljómsveit sína.
Vera má að hann byrji aftur og þá með
smáhljómsveit. — „The Quintet Of Hot
Club Of Fr:mce“ er nýlega kominn saman
eftir að ha/.i legið niðri í nokkur ár. Hann
er langt frá því að vera eins góður og hann
var, sem mikið er að kenna því að fiðluleik-
arinn Stephan Grappelly er í afturför og
guitarleikarinn Django Reinhardt gerir ekki
betur en að standa í stað. — 1 janúar var
haldinn konsert í New York til minningar
um blues-söngkonuna frægu Bessie Smith,
en þá voru tíu ár liðin frá dauða hennar.
Þeir, sem léku voru jazzleikarar, sem leikið
höfðu inn á plötur með söngkonunni. —
Woody Herman er með einn negra í hinni
nýju hljómsveit sinni. Það er trompetleik-
arinn Ernie Royal og fer hann upp fyrir öll
takmörk á hljóðfærið. — Dizzy Gillespie er
með hljómsveit sína í hljómleikaför um
Evrópu. Munu þeir m. a. leika i Sviþjóð
og Danmörku. — Chubby Jackson fór með
„all-star“ hljómsvéit í hljómleikaför til
Svíþjóðar og jafnvel fleiri Evrópulanda
rétt fyrir jól. — Söngkonan og kvikmynda-
leikkonan Lena Horne hélt hljómleika fyrir
skömmu í London.
Innlendar fréttir. Hljómsveit Björns R.
Einarssonar lék inn á nokkrar plötur um
áramótin. Þær heppnuðust prýðilega og
voru leiknar í danslögum Ríkisútvarpsins
á gamlaárskvöld og nýársdag. Lagið Chi
baba, sem Björn söng inn á eina af þess-
um plötum fór sem eldur um sinu um bæ-
inn næstu daga á eftir, enda söng Björn
það snilldarlega. — Guitarleikarinn Trausti
Th. Óskarsson er nú hættur með K.K.-
sextettinum. í stað hans kom Gunnar Orm-
slev á tenór-saxafón. — Kristján Magnúss.
hætti að leika hjá Birni R. rétt fyrir ára-
mót og tók Árni Elvar við. Hann hefur
lítið leikið opinberlega á píanó, en fékkst
samt eitthvað við að leika á klarinett á
skóladansleikjum og víðar. — Gunnar
Egils, sem verið hefur við nám í Californíu
síðan í ágúst í fyrra, kemur til landsins
innan skamms, og mun hann aftur fara
að leika með hljómsveit Björns. Blaðið mun
að sjálfsögðu hafa tal af honum er hann
kemur og spyrja hann „jazzfrétta" frá
U.S.A. — Jam-session hafa engar verið
haldnar undanfarið, sem ef til vill stafar
af þvi að hljóðfæraleikarar hafa haft afar
mikið að gera síðustu vikurnar, en von-
andi mun þetta komast í sitt gamla horf,
þannig að það verði hægt að reikna með
einni session í viku, og þá með almennri
þátttöku úr öllum hljómsveitum. — S. G.
JaiMaíiÍ 13