Jazzblaðið - 01.02.1948, Blaðsíða 14
Leonard Feather:
Upprennandi Jazz-stjörnur
★
J. C. HEARD
Fáar smáhljómsveitir hafa möguleika á
að ná mikilli frægð, en á fyrsta hljóm-
sveitarstjóra ári sínu sannaði J. C. Heard
að hljómsveit hans er undantekning frá
þessari reglu. Eins og hljómsveitir þeirra
John Kirby, Lous Jordan og Eddie Hey-
wood hefur J. C. Heard sex-
tettinn sameinað nákvæmni
í verki, sérstæðar útsetningar
og lagt áherzlu á að skemmta
hlustendum og leika samt úr-
vals jazz. Með þessu er hljóm-
sveitin jafnt virt af almenn-
ingi sem. jazzgagnrýnendum.
J. C. Heard fæddist fyrir 31
ári í borginni Detroit í U.S.A.
A skólaárum sínum þar fékk
hann áhuga fyrir músik, en áður en hann
fór að læra lék hann sem amatör tromm-
ari í nokkur ár. Svo lék hann með hinum
og þessum lítt þekktum hljómsveitum fram
til ársins 1938, en þá fékk hann fyrsta
verulega tækifærið er hann kom til New
York.
Teddy Wilson, sem þá var að hætta hjá
Benny Goodman stofnaði eigin hljómsveit
og réði J. C. til sín. Er Wilson hljómsveit-
in leystist upp lék J. C. í dálítinn tíma
hjá Ben Webster og svo Coleman Hawkins,
en 1941 stofnaði Wilson smáhljómsveit, sem
lék á Cafe Society og var J. C. þá aftur
með honum. Eftir að hafa verið þarna í
15 mánuði tók J. C. sæti Cozy Cole í hljóm-
sveit Cab Calloway. Hann lék með Cab í
þrjú ár og hefur þú ef til vill tekið eftir
honum í kvikmyndum þeim, sem hljóm-
sveitin lék í á þessum árum. Þegar hann
fór frá Cab Calloway réðist hann til síns
gamla félaga úr Teddy Wilson hljómsveit-
inni, Benny Morton en hann var með eigin
sextett á Cafe Society Downtown.
Er Morton fór þaðan var J. C. beðinn
um að stofna hljómsveit til að leika í
klúbbnum. Þeir byrjuðu 12. febrúar 1945,
stuttu eftir að J. C. var kjör-
inn „new-star“ trommari árs-
ins af jazzsérfræðingum tíma-
ritsins Esquire.
Meðan hljómsveitin lék á
Cafe Society lék Heard mikið
inn á plötur, engu minna með
sinni hljómsveit en öðrum, svo
sem Slam Stewart og Dizze
Gillespie. Hljómsveit hans lék
inn á plötur með hinni frægu
söngkonu, Ethel Waters, svo
og Etta Jones. Þá var hljóðfæraskipun
þessi: Heard á trommur, George Treadwell
trompet, Budd Johnson tenór-sax, Jimmy
Jones píanó, Dick Harris trombón og bassa-
leikarinn A1 McKibbon, sem er mágur J. C.
Síðan hafa þeir Joe Newman og George
Nicholas tekið við sætum þeirra Treadwell
og Jóhnson.
J. C. Heard, sem eitt sinn vann fyrir
sér sem steppdansari hefur sýnt að hann
er engu lakari hljómsveitarstj. en trommu-
leikari, og hefur hann gerst ennþá víðtæk-
ari með því að syngja með hljómsveitinni
og gefst það vel.
Það þarf meir en meðal mann til að
stjórna hljómsveit og vera sjálfur tromm-
ari hennar, svo að ekki verði úr því „one
man show“.
Það er enginn vafi á því að J. C. Heard
er einn af þeim fáu útvöldu og blasir fram-
tíðin við honum og hljómsveitinni.
:
14 javLUlt