Jazzblaðið - 01.04.1949, Qupperneq 6
Hallur Símonarson:
ÍSLENZKIR H LJÓÐFÆRALEI KARAR
Vilhjálmur Guðjónsson
Það þætti mikil frétt í dag ef tíu ára
gamall drengur léki í danshljómsveit í
einhverju af samkomuhúsunum hér í
Reykjavík. En fyrir tuttugu og einu ári
síðan byrjaði Vilhjálmur Guðjónsson,
tíu ára gamall, að leika í hljómsveit
Bernburgs heitins fiðlulcikara að Hótel
Ísland. Þótti það í þá daga stórmerki-
legt og barst fréttin um litla píanóleik-
arann á „Landinu" eins og eldur í sinu
um bæinn, enda voru hljóðfæri þá al-
mennt ekki álitin barnameðfæri.
Vilhjálmur Guðjónsson er fæddur 8.
nóvember 1917 í Vík í Mýrdal, en flutt-
ist kornungur með foreldrum sínum til
Reykjavíkur. Sjö ára gamall byrjaði
hann að læra á píanó og stundaði það
nám í þrjá vetur. Fyrsta hljómsveitin,
er hann lék í, var hljómsveit barna-
stúkunnar Æskunnar og léku m. a. í
þeirri hljómsveit Páll Bernburg, nú
trommuleikari í hljómsveit Aage Lor-
ange og Bjarni Guðjónsson, bróðir Vil-
hjálms, er lék á fiðlu. Flestir meðlimir
hljómsveitarinnar voru um fermingu
nema Vilhjálmur, sem var tíu ára.
Litlu seinna byrjaði hann svo einnig að
leika að Hótel ísland, eins og áður er
getið. Vilhjálmur hafði ekki sérstaklega
mikinn áhuga fyrir píanóleiknum, en
langaði afar mikið til að læra á eitthvað
blásturshljóðfæri, og þegar hann heyrði
Eirík Magnússon bókbindara, leika á
saxafón, ákvað hann að læra á það
hljóðfæri. 1 fermingargjöf fékk hann
svo saxafón frá föður sínum og sigldi
þá um vorið til Hamborgar í Þýzkalandi
til að læra á hann. Hét kennari hans
Erik Agats og stundaði hann nám hjá
honum í fjóra mánuði. Um haustið fór
hann heim til Islands og byrjaði þá um
veturinn (1931) að leika að Hótel Birn-
inum í Hafnarfirði, og lék á saxafón.
Aðrir í hljómsveitinni voru Árni Björns-
son, píanó, og Karl Matthíasson með
fiðlu og C-saxafón. Dansleikirnir á
Birninum byrjuðu kl. 8 að kvöldi og
stóðu fram til kl. 5 að morgni. í allan
þennan tíma fengu þeir aðeins tuttugu
mínútna ,,pásu“ og tuttugu og fimm kr.
í kaup. Á Birninum lék Vilhjálmur í
tvo vetur, en seinni veturinn lék Sveinn
Ólafsson á fiðlu í staðinn fyrir Karl.
Haustið 1934 réðist Vilhjálmur, ásamt
Sveini í hina ágætu hljómsveit er Aage
Lorange var með í Iðnó og lék hann þar
í tvo vetur. Var hann með saxafón og
6 JardUS