Jazzblaðið - 01.04.1949, Qupperneq 8
^ LIR ÝMSUM ÁTTUM 4-
Jelly og Duke. Kæru átgefendur.
Þakka kærlega þau blöð, sem ég hefi
fengið síðan ég gerðist áskrifandi. Þau
eru mjög fróðleg, og það, sem manni
fannst helzt vanta í fyrstu blöðunum
er að smákoma og stendur þetta allt til
bóta.
Ég bið ykkur, ef ])ið mögulega getið,
að fræða mig á því, hver leikur á klari-
net í hijómsveit Jelly Roll Morton,
og hvort stutt sé, síðan Duke Ellington
samdi lagið „Creole love call“.
Fyrirfram þakkir.
„Ófróður hljóðfæraleikari“.
Svar: I síðustu hljómsveit sem Jelly
Roll hafði (hann lézt 1943) lék Albert
Nicholas á klarinettið. Annars lék Jelly
mikið inn á plötur og þá ekki alltaf með
sömu mönnunum, en plötur, sem hér
hafa fengizt með hljómsveit hans eru
einmitt frá þeim tíma þegar Nicholas
lék með honum (um 1939). Duke Ell-
ington lék í fyrsta sinn „Creole love
call“ inn á plötu árið 1927 svo að lagið
er að minnsta kosti 22 ára.
Klar. Vinsæla Jazzblað, viltu gjöra
svo vel og svara íyrir mig eftirfarandi
spurningum: Hvernig er (var) liljóm-
sveitin „Washboard rhythm boys“ skip-
uð? 2. Hver spilar (sj)ilaði) á klarinet
hjá Jelly Roll? 3. Hvað heitir klarinet-
Ieikarinn hjá Joe Daniels? 4. Er Bud
Freeman klarinetleikari? 5. Er þáð
Harry Carney, sem Ieikur á bariton-sax
í plötunni „Hello Lola“ ? 6. Leikur Ed-
mund Hall á Albert-system klarinet? 7.
Væri hægt að fá birtan lista yfir klari-
netleikara gamla tímans, og hvar þeir
spila og spiluðu, og einnig ef rúm er
íyrir .aðra . liljóðfæraleikara, .einkum
blásturshljóðfæraleikara? 8. Hver leik-
ur á klarinet hjá Muggsy Spanier?
Með fyrirfram þakklæti. Áskrifandi.
Svar. 1. Árið 1932 voru þessir í hljóm-
sveitinni: Eddie Shine sax og klar, Ram
Ramirez píanó, Steve Washington banjó,
guitar og söngv., ,,Ghost“ Howell bassi
og söngv., Washboard Smith trommur
og þvottabretti, Bella Benson söngv. og
Frank Denton stjórnandi. Þessi hljóm-
sveit lék „Tiger Rag“ á plötu. Árið áð-
ur var skipunin trompet, saxafónn, pí-
anó, guitar, banjó og þvottabretti og
léku þeir „Pepper steak“ á plötu. 2.
Svar við þessari spurningu má finna í
svarinu við næsta bréfi á undan. 3. Nat
Temple, hefur nokkuð lengi leikið á
klarinet með Daniels. 4. Freeman er
tenór-sax leikari, en á plötunum „The
Buzzard“ og What is there to say“ leik-
ur hann einnig á klarinet. 5. Á „Hello
Lola“ er enginn baritónn heldur tenór
og er það Coleman Hawkins. 6. Já. 7.
Ekkert sjálfsagðara, en sökum rúmleys-
is ekki fyr en í næsta blaði. 8. Á þeim
plötum, sem hér hafa fengizt með
Spanier hefur Rod Cless leikið á klari-
netið.
8 Ja::lLM