Jazzblaðið - 01.04.1949, Síða 23
WffrfffrttTWv
fi'éttir oi* fleira
ERLENT.
Cliubby Jackson bassaleikari er nú
hættur hjá Woody Herman og hefur
stofnað eigin hljómsveit. Oscar Petti-
ford, sem leikið hefur hjá Ellington tók
sæti hans í Herman hljómsveitinni.
Down Beat, ameríska tónlistarblaðið,
lét fara fram kosningar um hljómsveit-
ir og hljóðfæraleikara eins og untlanfar-
in ár og líta fyrstu sætin |>annig út:
Stór hljómsveit, Duke Ellington. Lítil
hljómsveit, Charlie Ventura. Trompet,
Charlie Shavers. Trombón, Bill Harris.
Altó, Jonny Hodges. Tenór, Flip Phill-
ips. Baritón, Harry Carney. Klarinet,
Buddy DeFranco. Píanó, Mel Powell.
Trommur, Sheily Manne. Bassi Eddie
Safranski. Guitar, Oscar Moore. tJtsetj-
ari, Billy Strayliorn. Söngvari með
hljómsveit, AI Hibbler. Söngvari án
hljómsveltar, Biily Eckstine. Söngkona
með hljómsveit, June Christy. Söngkona
án hljómsveitar, Sarali Vauglin. Uppá-
halds einleikari, Duke Ellington. Á liin
einstöku hljóðfæri mátti ekki kjósa þá
menn, er stjórnuðu hljómsveitum.
Stan. Síðan Kenton lagði niður hljóm-
sveit sína um síðustu áramót hafa þeir,
sem voru með honum skipzt niður í hin-
ar og þessar hljómsveitir. Bassaleikar-
inn Ed Safranski er kominn til Charlie
Barnet. Guitarleikarinn Laurindo Al-
meida er kominn til Earl Spencer, sem
einnig réði til sín trompetleikarann
Buddy Childers, altósaxafónleikarann
Art Pepper og trombónistann Harry
Forbes. Pete Rugolo útsetjari Kentons
hefur verið ráðinn til Capitol hljóm-
plötufyrirtækisins. Ray Wetzel hefur
stofnað eigin quintet. Kenton segist
ekki ætla að stofna hljómsveit aftur, en
hvað sagði Woody Herman ekki þogar
hann hætti síðast, og er hann nú aftur
með hljómsveit, sem er að verða eins
góð og sú gamla, og er þá mikið sagt.
Spike Jones „grín-hljómsveitin“, hef-
ur leikið lag sem nefnist „All I want for
Christmas is my twoo front teeth“ og
hefur platan selzt í einu og hálfu millj.
eintaka í Bandaríkjunum. Það er svo
sem ekki allt fengið með því að leika
jazz, í það minnsta ekki peningarnir.
Sidney Bechet hinn ágæti sópran-
saxafónleikari lék inn á fjórar plötur
fyrir nokkru hjá „Circle suond“ plötu-
fyrirtækinu. Með honum voru þeir Bust-
er Bailey klarinet, Wilbur DeParis trom-
bón, Albert Snaer trompet, Walter Page
bassi, James P. Johnson píanó og Ge-
orge Wettling trommur.
J/azzífatíiif 23