Jazzblaðið - 01.06.1950, Blaðsíða 10
Lýður Sigtryggsson hinn kunni har-
monikuleikari staldraði við í Reykjavík
fyrir nokkru og átti Harmonikusíðan
viðtal við hann.
Lýður er Norðlendingur að ætt, hann
hafði vakið nokkra athygli á sér hér
heima, áður en hann fór til Noregs, en
þar hefur hann sem kunnugt er, leikið
í nokkur ár. Lýður fór utan árið 1939
til að nema harmonikuleik og lærði hann
bæði hjá Hertvig Kristoffersen og Rolf
Syversen, einnig var hann við hljóm-
fræðinám í tónlistarskólanum í Osló.—
Árið 1946 tók Lýður þátt í keppni um
titilinn „Harmonikumeistari Norður-
landa“. Keppni þessa sigraði hann með
miklum yfirburður, hin fi'jálslega fram-
koma hans á sviðinu og smekklega laga-
val átti hvað mestan þátt í því, að hann
var með því nær helmingi fleiri atkvæði
en næstu þrír menn, og svo náttúrlega
HARMONIKUSÍÐAN
Ritstj.: Bragi Hlíðberg
LYDUR SIGTRYGGSSON
hinn einstaklega góði leikur hans. —
Nokkru síðar kom Lýður heim til ís-
lands og hélt hljómleika víða um landið,
og var kennari hans Hartvig með hon-
um. Hartvig hefur samið marz, sem
nefnist „Þingvallamarzinn“ og er hann
tileinkaður Lýð. Marz þessi er mikið
leikinn af íslenzkum harmonikuleikur-
um og þykir mjög góður.
Síðan fór Lýður aftur utan, en þar
hefur hann fengizt við harmonikuleik
síðan. Hér var hann á snöggri ferð, en
ekki var hann frá því, að hann kæmi
hingað á næsta sumri til að halda hljóm-
leika.
Lýður hefur eingöngu fengizt við að
leika sem einleikari. Hann ferðast um
landið og kemur fram annað hvo*'t, sem
„númer“ á skemmtunum eða þá með
sjálfstætt „prógram“.
Einnig hefur Lýður leikið í Dan-
mörku og Svíþjóð, en ekki vildi hann
neitt gefa upp hvernig móttökurnar hafa
verið þar, sem hann hefur leikið, er
sennilega stafar af því, að hann þykir
sérstaklega góðui', og liti það illa út
ef hann yrði sjálfur til að segja frá
því. En upplýsingarnar um hinar miklu
vinsældir Lýðs, höfum við frá ekki ó-
merkilegri heimildum en ritstjórn
sænska harmoniku blaðsins.
Lýður sagði okkur margt og mikið
um hljómlistarlífið í Noregi, sem of
langt yrði allt upp að telja hér. En
10 jazdUúf