Jazzblaðið - 01.09.1950, Side 11
Eg veit, að aftur mun eg ajá þig
og ástkært sjá augnatillitið þitt,
Þá allt, sem fegursc er, er mitt.
EG LÍÐ MEÐ LYGNUM STRAUMI
Lag: Cruising down the, river.
Ég líð með lygnum straumi
einn um ljósa sumarnótt,
og bátnum vagga bylgjur hægt,
en blærinn hvíslar hljótt,
um ást og ævintýri,
og um yndislega snót,
sem örmum vill mig vefja
og mér veita ástarhót.
Ó, dýra fagra draumanótt,
þér dvelja vil ég hjá,
og ljúfar myndir laða fram,
unz ljómar dagsins brá.
Ég líð með lygnum straumi
einn um Ijósa sumarnótt,
og bátnum vagga bylgjur,
meðan blærinn andar hljótt.
DOLORES FESTOSI heitir stúlkan á
mnydinni hér að ofan. Hún er ítölsk og
í hópi fremstu ,,konsert“-harmonikuleik-
ara Evrópu. — Hér að neðan er mynd
af 13 ára gömlu undrabarni, sem vakið
hefur heimsathygli fyrir liarmoniku-
leik. Hann heitir DAVIDE ANZAGHI.
TIL LESENDA
Þar sem nokkuð hefur safnazt fyrir
af efni undnafarið, verður ekki hægt
að hafa dálkana „Úr ýmsum áttum“,
„Ad lib‘‘ og „Harmonikusíðuna“ í þessu
hefti, en þeir koma allir í næsta hefti.
Frestur til að skila greinum í verðlauna-
samkeppni blaðsins er framl. í einn
keppni blaðsins er framlengdur í einn
mánuð, eða til 1. okt. (Sjá nánar um
reglur fyrir kepninni á bls. 12 í 5.—6.
tbl. þessa árgangs). Þeir Jón M. Árna-
son, Ólafur Gaukur Þórhallsson og
Svavar Gests munu dæma um grein-
arnar.
11