Jazzblaðið - 01.09.1950, Blaðsíða 15
stjórnar beztu jazzhljómsveit Canada,
Oscar leika og réði hann þegar í hljóm-
sveitina.
Þetta varð til þess, að snilli Oscars
barst um allt Canada, og leið ekki á
löngu áður en hann var farinn að leika
inn á plötur fyrir Victor. Plötur þessar
urðu mjög vinsælar og voru söluhæstu
plöturnar, sem Victor lét gera í Can-
ada. Og það er athyglisvert, að þetta
eru fyrstu jazzplöturnar þar í landi,
sem eru keyptar meira en dans- og
klassískar plötur.
Á plötum þessum svipar Oscari að
nokkru til King Cole og ennfremur ger-
ir hann mikið að því að leika boogie
woogie. Sannast að segja hefur Oscar
vart verið búinn að finna sjálfan sig,
hann hafði enn ekki tekið upp nógu
persónulegan stíl, enda segir hann sjálf-
ur, að Holmes hafi hjálpað honum til
að skapa sjálfstæðan stíl og segist
hann varla hafa getað leikið hæg lög.
Þegar Oscar hætti hjá Holmes, þar
sem honum hafði líkað sérstaklega vel,
en þar var hvergi gerður munur á hon-
um og hinum mönnum hljómsveitar-
innar, þó að hann væri eini negrinn í
henni, stofnaði hann tríó með trommu
og bassa, auk píanósins.
Oscari höfðu borizt tilboð frá Banda-
rískum hljómsveitum, en hann fór
hvergi. Hann vildi verða enn betri, áð-
ur en hann hætti sér yfir landamærin,
í land hinna mörgu jazzpíanósnillinga.
En þegar Oscar loks fór yfir landa-
mærin, sem var síðastliðið haust, þá
kom í Ijós, að hér var á ferðinni óvenju-
legur pianóleikari. Hann lék um skeið á
næturklúbb í New York, en þar sem
hann var alveg óþekktur, bárust sögur
af snilli hans aðeins út á milli jazzleik-
ara. Þetta var þó nóg til þess, að Nor-
man Granz, sem frægur er fyrir jazz-
konserta þá, er hann stendur fyrir, bauð
Oscari að leika með sem gestur á hljóm-
leikum í New York.
Þetta hefði Granz aldrei átt að gera,
þeirra vegna, er voru ráðnir upp á há
laun til að leika á hljómleikunum, því
að Oscar gerði hvorki meira né minna
en „að stela hljómleikunum“, eins og
það er orðað. í gagnrýni blaðanna um
hljómleikana var öllu lofinu hlaðið á
Oscar, og hvílíkt lof.
Oscari bárust nú tilboð um að leika
á mörgum næturklúbbum í New York,
en hann „pakkaði niður og fór heim“,
þar sem hann byrjaði aftur með tríóið.
Ekki hafði hann samt frið, honum
bárust tilboð daglega, m. a. vildi Gi’anz
15