Jazzblaðið - 01.09.1950, Blaðsíða 16

Jazzblaðið - 01.09.1950, Blaðsíða 16
fá hann til að ferðast með hljómleika- flokk sinum um Bandaríkin, en Oscar fór ekki. Oscar hefur sennilega gert það, sem rétt var. Hann var búinn að vinna sig upp í Canada, og vildi ekki þurfa að gera það aftur í Bandaríkjunum eins og Shearing þurfti að gera, þó að hann hafi verið einn bezti píanóleik- arinn í allri Evrópu, þegar hann fór til Bandaríkjanna. En loks lét Oscar skríða til skarar. Hann fékk hvorki meira né minna en eitt þúsund dollara í kaup fyrstu vik- una, sem hann lék í New York, og hver veit hvað það verður fljótt að hækka. Hann er byrjaður að leika inn á plötur, og slógust plötufyrirtækin um hann. Fyrstu plötunni hans hjá amerísku plötufyrirtæki gefa jazzblöðin hina bezt dóma, og segir Levin m. a. í Down Beat, að Oscar hafi það bezta frá þeim Shearing, Cole og Tatum fléttað saman innan um sinn sterk persónuleik. I viðtali við Melody Maker í Eng- landi segir Norman Granz, en hann var þar á ferð í sumar: „Oscar geng- ur næst Tatum“. Þeir, sem kunnugir eru hinni miklu snilli Tatum, segja flestir, að enn sé ekki kominn fram píanóleikari, sem sé betri en hann. Þetta er að mörgu leyti satt. Ótal píanóleikarar hafa komið fram undan- farin ár, sem allir hafa verið álitnir menn til að fara fram fyrir Tatum, en það hefur þó ekki orðið. Hvort Oscar er í hópi þessara augna- bliks-frægu píanóleikara eða sá snill- ingur, sem sögurnar af honum vilja vera láta, fáum við úr skorið næstu mánuði. UNGAR BE-BOP STJÖRNUR FRAMH. af bls. 9. hann í mánuð og þeirri næstu aðeins tvo daga, vegna þess að hljómsveitar- stjóranum var skellt í fangelsi. Síðan byrjaði hann að leika á altó-saxófón og lék m. a. með Jerry Wald hljómsveit- inni. Hann fór því næst í menntaskóla, en lék með og byrjaði með hinni þekktu hljómsveit Claude Thornhill 1947, þar sem hann lék m. a. sólóar á Colombía- plötunum „Anthropology“ og „Yardbird Suite“. Hann lék í hinni margumtöl- uðu hljómsveit Miles Davis á „Royal Roost“ í New York haustið 1948, en byrjaði svo með Lennie Tristano, þar sem hann hefur verið síðan. Lee er einn hinna fáu Be-bop altóista, sem tek- izt hefur að skapa sjálfstæðan stíl, án þess að líkja eftir Parker. HILMAR SKAGFIELD, formaður Jazzklúbbs íslands er á för- um til Bandarikjanna, þegar þetta er ritað. Hann mun dveljast við verzlunar- nám í Florida í eitt ár. — Hilmar mun að sjálfsögðu hafa samband við klúbb- inn á meðan hann er úti, og senda Jazz- blaðinu fréttabréf og greinar, ef tök eru á. Hann hefur beðið Jazzblaðið að skila « kveðju til allra jazzunnenda. Stjórnin hefur falið Svavari Gests, ritara klúbbs- ins, að gegna jafnframt störfum for- manns fram að næsta aðalfundi, sem verður í haust. 16 ^a-ltaU

x

Jazzblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Jazzblaðið
https://timarit.is/publication/722

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.