Jazzblaðið - 01.09.1950, Blaðsíða 14
OSCAR PETERSON
eftir Svavar Gests
<i>---------------------------------------------------------------------------------
Fyrir ári síðan var Jazzblaðið fyrsta jazztimaritið í Evrópu til
að lcynna lesendum sínum píanóleilcara, að nafni George Shearing,
sem síðan liefur hlotið heimsfrægð. Enn er Jazzblaðið á undan og
lcynnir í þetta sinn píanóleilcarann Oscar Peterson, sem vafalaust
á eftir að verða frægasti píanóleilcari jazzins.
----------------------------------------------------------------------------------«>
í janúar 1947 birtist lítil grein um
Oscar Peterson, í jazztímaritinu Metro-
nome, þar sem greinarhöfundur endar
á þessum orðum: „Ef Oscari Peterson
fer jafnmikið fram á næstunni eins og
honum hefur farið fram undanfarið
ár, þá er ekkert sem mælir á móti því,
að hann komist í flokk með þeim Teddy
Wilson, Erroll Garner, og — já, meira
að segja Art Tatum“.
Greinarhöfundur hefur sannarlega
vitað hvað hann var að segja, því að
þremur árum síðar, segir Michael
Levin í Down Beat, en orð hans eru
stundum nóg til þess að menn nái
frægð: „Það leikur enginn vafi á því,
að Oscar er það bezta, sem fram hef-
ur komið undanfarin ár í heimi jazz-
píanóleikaranna".
Oscar fæddist í Canada fyrir 25 ár-
um. Faðir hans var þjónn í járnbraut-
arlest, en hann hafði mjög gaman af
tónlist og lét börnin sin læra á hljóð-
færi. Oscar var mjög ungur, þegar
hann byrjaði að fást við píanóið — og
fimm ára gamall var hann farinn að
glíma við trompetinn. Þegar hann varð
sjö ára fékk hann berkla, en fékk full-
an bata, er hann hafði verið á spítala
í rúmt ár. Faðir hans lét hann þá fara
að læra á píanó aftur, þar sem hann
vildi hlifa lungum hans við trompet-
hlæstrinum.
Oscari líkaði vel við pianóið og sýndi
mikinn áhuga, en ekki byrjaði hann
að leika jazzmúsík fyrr en hann
byrjaði í gagnfræðaskóla. Móðir hans,
sem fylgdist af alhug með hljómlistar-
áhuga sonar síns, hvatti hann og leið-
beindi honum, þegar hann var að byrja
við jazzinn.
Aðeins fjórtán ára gamall fékk Oscar
250 dollara verðlaun í amatör sam-
keppni nokkurri, og nokkru síðar byrj-
aði hann að leika í vikulegum þætti
við útvarpsstöð í Montreal, þar sem
hann varð mjög vinsæll.
Oscar hélt áfram að læra undir leið-
sögn góðs kennara, og æfði hann klassík
engu minna en jazz, sem mikið hefur
hjálpað hinni teknisku hlið í leik hans.
Árið 1946 heyrði Johnny Holmes, er
14 jazzLUiÍ