Musica - 01.04.1948, Blaðsíða 3

Musica - 01.04.1948, Blaðsíða 3
X ÍHuMca 1. ÁRGANGUR APRÍL 1948 1. TÖLUBLAÐ / Utgefandi: Drangeyjarútgáfan. FYLGT ÚR HLAÐI Það er ávallt erfitt að hefja útgáfu tímarits, sérstak- lega 'þó sértímarits, bæði frá fjáthagslegu og efnislegu sjónarmiði. Það er óhjákvæmilegt, að mikið megi að riti þessu finna, en vonandi stendur það til bóta, og með aðstoð lesenda okkar ætti að vera mögulegt að skapa læsilegt og fróðlegt rit. Við höfum reynt að fara inn á sem flest svið ’hljóm- listarinnar, en afleiðingin hefur verið, að blaðið er nokkuð laust f reipunum, en af tvennu illu er það þó ’betra en bragðdeyfð og ein'harfni. Einnig má deila um stafsetningu 'hinna útlendu orða og tónlistaiiheita. I iþessu hefti er lítið gert að þýðingum, en hin útlendu orð látin halda sér að svo miklu leyti sem það kemur ekki í bága við efnið. Þó höfum við notað þau íslenz'ku orð, sem vel hafa fallið við kjarna frummálsins, t. d. Opera, söngleikur, Symphony, sinfónía, sem er gamalt og gott orð og hefur verið notað hér á landi lengi. Við vildum gjarn- an fá álit lesenda okkar á þessari stefnu. I næstu tölublöðum munum við hefja greinar um hin einstöku hljóðfæri og flokka hljóðfæra, þvf að það er ekkert efamál að það eru margir, sem ekki vita um helming þeirra hljóðfæra, sem eru í nofkun um heim allan. Yfirleitt munum við reyna af fremsta megni að flytja í 'blaðinu svo mikinn fróðleik sem mögulegt er og flytja hann þannig, að efnið verði auðskilið hverjum leikmanni, er hefur áhuga á að fræðast um „list listanna“. í hverju 'hefti munum við og reyna að birta eitt eða tvö lög fyrir mismunandi hljóðfæri eftir innlenda sem erlenda 'höfunda og verður reynt að hafa lögin í sem viðráðanlegustum útsetningum. I hverju blaði verður og bréfakassi og væntum við að lesendur vorir notfæri sér hann og yfirleitt segi okkur álit sitt á blaðinu, því það er okkar bezta hjálp. Við viljum nota þetta tækifæri og þakka auðsýnda aðstoð við útkomu blaðsins, sérstaklega viljum við þakka dr. Páli ísólfssyni fyrir leiðbeiningar þær og aðra velvild, er hann hefur sýnt blaðinu og svo Antoni Kristjánssyni blaðamanni fyrir margháttaða aðstoð. Að endingu: Við heitum á lesendur vora að leggja sinn skerf til að skapa gott og læsilegt blað og tökum við með þakktlæti á móti öllum tillögum og leiðbein- ingum og munum fara eftir þeim að svo miklu leyti, sem það kemur 'hem við stefnu ritsins. MUSICA 3 LANDSBÓKASAFN »A1 í 7 Ö 3 G - ÍS LANllS

x

Musica

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Musica
https://timarit.is/publication/725

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.