Musica - 01.04.1948, Blaðsíða 27

Musica - 01.04.1948, Blaðsíða 27
Dansliljómsveitir 1. Karl Jónatans og hljómsveit hans I Kabarett Iþeim, er var haldinn til ágóða fyrir. barnaihjálpina söknuðu margir einnar hljómsveitar, er hefur upp á síðkastið aflað sér mikilla vinsælda, en það var Ihljómsveit Karls Jónatans, en við treystum á að þetta endurta'ki sig ekki, þar sem ekkert álitamál er, að Karl Jónatans hefur með sínum sérstaka stíl skapað sér nafn meðal íslenzkra danshljómsveita. Karl Jóntans er fæddur 24. febr. 1924 og er því 24 ára að aldri. Hann fæddist á Blikalóni við Rifstanga, Norður-Þingeyjarsýslu. 10 ára gamall fékk hann har- moniku að gjöf frá föður sínum og varð Ihón þegar eftirlætisleikfang 'hans. Varð hann brátt eftirsóttur til að leika á skemmt- unum og er skemmst frá að segja að hann lék á har- monikuna í 11 ár og varð þekktur um allt land. En þá kynntist hann saxófóninum og tók að leika á tenór sax og hefur leikið á hann síðan. Fyrstu hljómsveit sína stofnaði hann 19 ára að aldri á Hótel Norðurland og ihann hefur síðan leikið með hinum og þessum hljómsveitum og einnig sjálfur haft nokkrar, en síðasta sumar kom hann upp þeirri hljómsveit, er hann hafði lengi óskað sér, og má segja að Karl hafi haft mikil áhrif á 'hvern einstakling innan hljómsveitarinnar, 'hann hefur kennt þeim öll- um og yfirleitt unnið mi'kið Ieiðbeinandastarf, enda lætur honum það vel. Hljómsveitina skipa nú: Karl Jónatans, Tenor sax, stjórnandi. Karl Adolfsson, clarinett. Páll Olafsson, bassi. Jón Óskar Asmundsson, píanó. Arnljótur Sigurðsson, trommur. Söngkona með hljómsveitinni er Lilly Björgvins- dóttir. Leikur hljómsveitin mikið Dixieland, en það er uppáhaldsstíll Karls, og er líklegt að hljómsveitin bæti við sig einum manni, trompetleikara, en ekki er ákveðið enn hver það verði. Karl hefur ávall't útsett fyrir hljómsveitina, og sjálf- um finnst Karli meira gaman að útsetja en að leika á saxófóninn, auk þess hefur (hann samið nokkur lög, og hefur hljómsveitin leikið tvö þeirra í útvarpið. Söngkona hljómsveitarinnar, Lilly Björgvinsdóttir, hefur skemmtilega rödd og með góðri og mikilli þjálfun mun ekki vera ólíklegt að við fengjum að heyra sérkennilega söngkonu innan mjög langs tíma. Með 'hljómsveitinni ríkir sérstakur vinarbragur, og það léttir æfingar sllkrar hljómsveitar mikið, þegar góður kunningsskapur ríkir milli meðlimanna. Karl Jónatans á mikla framtíð fyrir sér með hljóm- sveit sína. Er 'hann hefur losað sig við hlédrægni sína mun hann fá lofa að verðleikum. Eftirlætishljómsveit Karls er Ellington, en litlar hljómsveitir Goodman sextettinn, Muggsy Spanier með septett og Harry Parry með sextett, en einleikari — auðvitað Hawkins. Ekki væri rétt að skilja svo við hljómsveitina, að eigi sé minnzt á clarinettleikarann Karl Adolfsson. Karl er tvímælalaust mikið efni, og ef hann gæ-ti hrist af sér þann „feimnishjúp“, er hvílir yfir honum, má búast við miklu af honum. Björn R. Einarsson hafði einmitt lokið við að syngja Chi Baba — Qlii Baba, er ung blómarós kom til hans og bað hann að syngja Chi Baba — Chi Baba. „Ég var einmitt að ljúka við að syngja það,“ sagði Björn undrandi. „Ó, bara að ég hdfði vitað það,“ stundi hin fagra,. „það er nefnilega uppáihaldslagið mitt.“ MUSICA 27

x

Musica

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Musica
https://timarit.is/publication/725

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.