Musica - 01.04.1948, Qupperneq 15
VIÐSJA
Island.
Von er á danska fiðlusnillingnum Henry Holst
hingað í vor á vegum Tólistarfélagsins. Má telja
komu hans mikið happ fyrir íslenzkt tónlistarfif.
Gunnar Egils clarinettleikari er nú kominn heim,
eftir eins árs nám í Baftdaríkjunum. Hann mun
væntanlega far út næsta haust aftur, að þessu sinni
til Englands. Hann mun taka upp aítur leik sinn með
hljómsveit Björns R. Einarssonar og einnig mun hann
leika með sinfóníuihljómsveitinni.
Danmör\.
íslenzki píanóleikarinn Axel Arnfjörð hélt fyrir
skömmu hljómleika í Kaupmannáhöfn ásamt danska
fiðluleikaranum Börge Hilfred og hafa þeir félagar
hlotið mjög góða dóma. Þeir félagar höfðu ráðgera að
koma hingað til hljómleikalhalda í fyrrasumar, en
vegna ófyrirsjáanlegra atvika varð ekkert úr ferðinni.
Emil Telmanyi, fiðlusnillingurinn heimskunni, er
oft 'hefur gist Island á vegum Tónlistarfélagsins, hefur
haldið nokkra Ihljómleika með strengjahljómsveit
sinni við ágætar viðtökur.
Todd Duncan og Anne Brown, négrasöngvararnir
frægu, er hafa sungið Porgy og Bess (aðalhlutverkin í
samnefndri óperu Gerswhins) hafa verið í hljómleika-
ferð um Evrópu. Þau hafa bæði verið í Danmörku og
hefur Duncan sungið Porgy á Konunglega leik'húsinu,
en Einar Nörreby hefur áður sungið það 'hlutverk, og
rnátti glöggt heyra að Todd Duncan var Porgy, og
gagnrýnendur í Danmörku segja, að leik Duncans
sé ekki hægt að gleyrna.
Annars má segja að óvenju mikið hafi verið um
tónlistarmenn í Danmörku síðasta vetur, og má nefna
t. d.: Yehudi Menuhin, Brailowsky, Praga quartett-
inn, Vasa Prilhoda, Zegovia, Lawrence Tibbet, Doris
Doree, Todd Duncan, Anne Brown. Auk þess hafa
komið ballettflokkar, þ. á m. Sandler Wells ballettinn
og ba'llettfiokkur frá París.
Er okkur verður litið á þennan lista, fáum við flest
vatn í munninn. Látum oss því vona, að þeir tímar
muni koma, að við getum aftur fengið hingað lista-
menn eins og árin eftir stríðið.
Noregur.
Tóns\áldaráð Norðurlanda hélt fund í Osló dag-
ana 21.—22. febr. og ræddi nýja höfundalöggjöf fyrir
Norðurlöndum og undirbúning að tónlistarlhátíð, er
ráðið gengst fyrir í Osló á hausti komanda.
Island er nú í fyrsta sinn aðili í ráðinu, þar sem
menn töldu þátttöku Islands í Bernarsambandinu
skilyrði fyrir upptöku í ráðið.
A mótinu munu verða haldnir þrír hljómleikar, er
filharmoníuhljómsveitin í Osló mun annast og þess
utan verða haldnir kammertónleikar og kirkjutón-
leikar.
Rise Stewens. Todd Duncan.
MUSICA 1 5