Musica - 01.04.1948, Blaðsíða 26
Sinfóníuhljómsveit Reykjavíkur stofnuð
Sá merkisviðburður, að sinfóníuhljómsveit var
stofnuð í Reykjavík, átti sér stað í haust.
I stjórn 'hljómsveitarinnar voru kjörpir þeir Indriði
Bogason, Fritz Weisshappel og Sveinn Olafsson.
Hljómsveitin hóf æfingar í nóvember og hefur síð-
an haldið tvo hljómleika, þá fyrri í janúar undir
stjórn dr. Victors v. Urbantschitsdh, einleikari með
hljómsveitinni var Röngvaldur Sigurjónsson, en þá
seinni í marz (Mozarthljómleika) undir stjórn Ró-
berts Abraham, en einleikari var þá Egill Jónsson,
clarinett.
B'áðir hljómleikarnir fengu mjög góðar undirtektir
og má með sönnu segja, að stofun hljómsveitarinnar
sé einn mesti viðburður íslenzkrar tónlistarsögu.
Fyrir Alþingi liggur nú tillaga um fjárveitingu til
hljómsveitarinnar að upphæð 600,000,00, og eru allar
líkur til að þetta sjálfsagða frumvarp nái fram að
ganga.
Reykvíkingar mega vera stoltir yfir að eiga nú sína
"eigin sinfóníuhljómsveit og eiga þeir menn, er að
stofnun hennar stóðu, miklar þakkir skilið fyrir dugn-
að sinn og áræði.
Hljómsveitin er þannig skipuð:
| liiliátlil SIi iUli -——
j
Sitjandi talið frá vinstri: Skapti Sigþórsson, 1. fiðla, Snorri Þorvaldsson, 1. fiðla, Hallgrímur Hclgason, 1. fiðla, Þorvaldur
Steingrímsson, 1. fiðla, Jón Sen, 1. fiðla, Hans Stephanek 1. fiðla (konsertmeistari), Katrín Dannheim, 1. fiðla, Jóhannes
Eggertsson, cello, Heinz Edelstein, cello, Þórhallur Árnason, cello, Ólafur Markússon, viola, Jónas Dagbjartsson, 2. fiðla, Þór-
ir Jónsson, 2. fiðla, Ingi Gröndal, viola, Sveinn Ólafsson, viola, Indriði Bogason, viola, Sigurður Gestsson, 2. fiðla, Ingi
Gröndal, 2. fiðla, Ingvar Jónasson, 2. fiðla, Valborg Þorvaldsdóttir, 2. fiðla, Beryl Koílbeinsson, 2. fiðla. — Standandi, talið
frá vinstri: Egill Jónsson, clarinett, Vilhjálmur Guðjónsson, clarinett, Oddgeir Hjartarson, flauta, Eiríkur Magnússon, fagott,
Árni Bjömsson, flauta, Andrés Kolbeinsson, oboe, Tómas Albertsson, obóe, Einar B. Waage, kontrabassi, Fritz Weisshappel,
kontratassi, næstur, fremst á myndinni, er stjórnandi hljómsvcitarinnar, dr. V. Urtantschitsch, Albert Klahn, slagverk, Guð-
laugur Magnússon, trompet, Karl Ó. Runólfsson, trompet, Jón Sigurðsson, horn. (Á myndina vantar Óskar Cortes, 1. fiðla,
Josef Felzman, 2. fiðla, Wilhelm Lanzky-Otto, horn, Lárus Jónsson, slagverk, Guðm. Nordahl, clarinett. — (Ljósm.: Vignir).
26 MUSICA