Musica - 01.04.1948, Síða 30
Charlie Shavers trompet Harry Carney . . . barytone sax
Howard McGee trompet Buddy DeFranco . .. clarinett
Bill Harris trombon Mel Powell píanó
Kai Winding trombon Shelly Manne trommur
Jack Teagarden trombon Eddie Safranski ... . bassi
Johnny Hodges .... alto sax Oscar Moore guitar
Charlie Parker altio sax Pete Rugolo útsetjari
Vido Musso tenor sax Buddy Stewart söngvari
Plip Philips tenor sax June Ohristy söngkona
Molar
Mikil Jazz-hátíðarhöld hafa farið fram í borginni
Nissa í Frakklandi.
Voru þau haldin að tilhlutun Hugues Panasie,
jazzgagnrýnandans fræga, og fransks dagblaðs.
Eru þetta efalaust mestu hátíðarhöld, er haldin
hafa verið ú vegum jazzins og tókust þau mjög vel.
Þær hljómsveitir, eru léku á hátíðinni, voru m. a.:
Rex Stewart og hljómsveit hans, Louis Armstrong
og hljómsveit hans, Zutty Zingelton, Jack Teagarden,
Coleman Hawkins og Dizzy Gillispie, svo að nokkur
nöfn séu nefnd.
Jazzhljómleikur var í Austurbæjarbíó á vegum
barnahjálpar sameinuðu þjóðanna, mikil aðsókn var
að hljómleiknum, og tókst hann mjög vel.
Dizzy Gillispie og Ghubby Jackson eru nú á ferða-
lagi um Evrópu og 'hafa vakið mikla hrifningu.
Þeir eru nú á Norðurlöndum.
The quintett of the 'hot club of Franec er aftur
býrjuð að leika saman eftir fimm ára hlé.
Django Reihard er jafn góður og hann var, en Step-
han Graphelli lei'kur eins og hann hafi mistt allan
rythma. Þau fimm ár, er hann dvaldi í Englandi, hafa
ekki haft bætandi áhrif á hann.
Bróðir Djangos, Joseph, leikur annan guitar, frændi
hans, Eugene Vees, þriðja og Fre Eremlin leikur á
bassa. Rytihminn er nokkuð þungur, og þó að leikur
quintettsins sé góður, þá varð hann jazzvinum von-
brigði.
Rex Stewart og hljómsveit hans
eru nú um það bil að leggja af stað til Bandaríkjanna,
en 'þeir hafa eins og kunnugt er dvalið í 6 mánuði í
Evrópu.
Hefir hljómsveitin hvarvetna hlotið frábæra dóma
og er heimsókn hennar líkt við heimsóknir Ellingtons
og Lunceford.
Nokkrar breytingar höfðu verið gerðar á hljóm-
sveitinni var Barney Bigard kominn á clarinettið og
Ted Curry á trommurnar.
Rex hefir leikið inn á fjölda hljómplatna í Frakk-
landi og segir Hugues Panasie lí „Le Jazz Hot“ „að
Stewart Ihafi enn sýnt, að hann sé einn fremsti trom-
petleikari 'heimsins“.
Annars virðist Svavar litli Gests vera lítið hrifinn
af Stewart eftir því sem hann segir í d'álki, er hann
kallar „Svavar svarar". Segir hann þar að Rex greyið
sé alveg ómögulegur og ekki sé hann Sandy betri, en
Vernon er að líkindum skástur, að því er Svavar
álítur.
Dæmir Svavar þarna að líkindum eftir nýjustu plöt-
um Stewarts og væri fróðlegt að heyra þær sem fyrst
á næstu „Plötu Session" hans.
Væri og fróðlegt fyrir hina erlendu gagnrýnendur
að kynna sér álit Svavars og læra af honum „að dæma
eftir músikinni, en láta ekki hörundslitinn blekkja sig“.
Tímaritið „MUSICA".
Tónlistartímarit, kemur út 6 sinnum á ári. — Utgefandi: Drang-
eyjarútgáfan. — Ritstjóri og ábyrgðarmaður Tage Ammendrup.
Ritstjórn og afgreiðsla Laugaveg 58, símar 3311 og 3896. — Askrift-
arverð 40 kr. fyrir árið. — Sent burðargjaldsfrítt um allt land.
30 MUSICA