Útvarpsblaðið - 03.06.1951, Side 6
Athyglisuert útvarpsleikrit:
„Flekkaðar hendur"
ettir Jean-Paul Sartre
Verður flutt í útvarpið þann 9. júní næst-
komandi á vegum Þjóðleikhússins.
Það mun óhætt að fulhjrða, að ekkert
þeirra erlendu leikrita, sem Þjóðleikhiisið
hefur enn tekið til meðferðar, hafi vakið jafn
mikla athygli og umtal og sjónleikurinn:
„Flekkaðar hendur“, eftir franska rithöfund-
inn og heimspekinginn Jean-Paul Sarte. Ber
margt til þess. Höfundurinn tekur til með-
ferðar efni, sem nú er efst á baugi, afstöðu
einstaklingsins til „flokksins“, og „flokksins"
til einstaklingsins, og kryfur það til mergjar
og meinsemda af vægðarlausri skarpskyggni,
og að því er virðist hlutdrægnislaust. Sartre
hefur sjálfur staðið nálægt kommúnista-
flokknum um skeið, og má því gera ráð fyrir,
að hann viti hvað hann er að segja, er hann
lýsir hinum harða flokksaga. Þess utan er
leikstjórn Lárusar Pálssonar hin athyglis-
verðasta og öllum bar leikgagnrýnendum
saman um það, að flestir leikendur gerðu
hlutverkum sínum mjög góð skil. Má þar
einkum til nefna Gunnar Eyjólfsson, sem
lék hlutverk Hugos, en meðferð hans á þessu
vandasama hlutverki vakti mikla eftirtekt.
Það mun nú fullráðið, að leikrit þetta verði
flutt í útvarpið laugardagskvöldið þann 9.
júní. Er það merkur dagskrárliður, sem hlust-
endur ættu ekki að setja sig úr færi að njóta.
Efni leikritsins verður ekki rakið hér, nema
að litlu leyti. Höfundur lætur atburðina ger-
ast í „Illeríu“, en ýmisslegt er það, sem sýnir
og sannar hvaða ríki hann liefur í huga, enda
hét eitt af löndum Mið-Evrópu því nafni til
forna, Þegar leikurinn hefst, er landið her-
setið af Þjóðverjum; hinsvegar hafa borist
fregnir af liraðri framsókn rússnesku herj-
anna á nálægum vígstöðvum, og allt bendir
til þess, að ekki muni líða á löngu, áður en
Þjóðverjar verði hraktir á brott úr landinu.
Kommúnistaflokkur Illeríu hefur að sjálf-
sögðu neyðst til að láta litið á sér bera, eftir
komu Þjóðverjanna. Auk þess hafa forráða-
menn hans ekkert samband getað haft við
„móðurflokkinn“ rússneska, og vita því ekki
með vissu, hvernig þeim beri að bregðast
við vandamálum dagsins. Aðalviðfangsefni
þeirra verður að skipuleggja og framkvæma
ýmiss skemmdarverk. Þegar fregnirnar af sigr
um kommúnistaherjanna taka að berast,
breytist viðhorfið; forráðamenn kpmmúnista-
flokksins greinir á um leiðir; ritari flokksins,
6
ÚTVARPSBLAÐIÐ