Útvarpsblaðið - 03.06.1951, Blaðsíða 19
SJONVARPSUPPTAKA. — Hljóðnemhin er á hreyfanleg.ri slá, og komið þannig fyrir,
að hann sjáist ekki á myndinni.
fólk vill sjá, og byggja þá þekkingu sína á
vísindalega nákvæmum og skipulögðum at-
hugunum. Hinsvegar má telja víst, að íþrótta-
kappleikir verði kærkomið dagslirárefni í
sjónvarpi, sömuleiðis ýmiss atriði úr athafna-
lífi og starfi manna, fréttnæmir atburðir svo
sem ýmsar sýningar og samkomur og að
sjálfsögðu sjónleikir og mörg skemmtiatriði,
sem einkum „tala“ til augans; má þar til
nefna listdans, „revíur“, leikfimi og annað
þessháttar. Vart mun koma til greina, að
upplestur eða fyrirlestrar verði á dagskiá
sjónvarpsins, nema því aðeins, að efnið sé
vel til þess fallið, að fluttar séu myndir eða
myndaþættir því til skýringar, og er ekki
ósennilegt, að þá aðferð megi nota með góð-
um árangri, þegar um ferðasögur eða viss
fræðsluerindi er að ræða. Þá er og ekki ó-
seunilegt, að talsvert verði gert að því að
sjónvarpa fréttamyndum, en þau vandkvæði
eru á slíkri fréttastarfsemi, að kvikmynda-
tökumaðm- verður að vera viðstaddur, er
atburðurinn gerizt, svo að unt sé að birta
fréttina í sjónvarpi, en slíkt kemur vart til
greina, þegar um skyndilega eða óvænta
atburði er að ræða. Loks er að ípinnast á
sjónvarpsflutning venjulegra kvikmynda,
sem öll líkindi eru til að verði svo kærkomið
sjónvarpsefni, að eigendum kvikmvndahúsa
stendur ógn af þeirri þróun, sem sjónvarpið
kann að valda á því sviði.
Samkvæmt þeirri reynslu, sem fengist hef-
ÚTVARPSBLAÐIÐ
19