Útvarpstíðindi - 01.03.1953, Qupperneq 3
Viðtal við
Vilhjálm Þ. Gíslason
útvarpsstjóra
Hinn 1. febrúar s. 1. var Vilhjálmur
Þ. Gíslason skipaður í embætti útvarps-
stjóra. Vilhjálmur Þ. Gíslason er það
gamall og góður kunningi útvarpshlust-
enda, að ekki þarf að kynna þeim hann,
svo vel hefir hann kynnt sig sjálfur,
bæði sem fyrirlesari og ráðunautur út-
varpsráðs, enda mun enginn útvarps-
maður hafa notið almennari hyllÞhlust-
enda um land allt, en einmitt hann. Þeg-
ar valið er í virðuleg embætti, vilja oft
skapast nokkrar deilur um valið, því
oft eru skiftar skoðanir um hverjum
heiðurinn ber, en skipun Vilhjálms í út-
varpsstjóraembættið, hefur ekki sætt
gagnrýni úr neinni átt; svo sjálfsagt
þótti að vandi og vegsemd þeirrar stöðu
yrði lögð á hans herðar.
Eins og kunnugt er, er Vilhjálmur Þ.
Gíslason sonpr hins þjóðkunna skálds
og blaðamanns Þorsteins Gíslasonar og
konu hans, Þórunnar Pálsdóttur.
Að loknu námi í ísl. fræðum var Vil-
hjálmur um skeið ritstjóri Lögréttu á-
samt föður sínum. Skólastjóri Verzlun-
arskólans hefir hann verið í rúm 20 ár,
en auk þess gegnt margvíslegum störf-
um öðrum í þágu ýmissa menningar-
mála; m. a. átt sæti í Þjóðleikhúsráði frá
því leikhúsið tók til starfa og verið ráðu-
nautur þess um leikritaval.
Hinn nýskipaði útvarpsstjóri er mað-
ur á bezta starfsaldri, 55 ára. Hann er
kvæntur frú Ingu Árnadóttur.
Vilhjálmur útvarpsstjóri hefir sýnt
Útvarpstíðindum þá vinsemd, að svala
nokkuð forvitni þeirra og svara eftir-
farandi spurningum :
1. Hvert er hið eiginlega verksvið út-
varpsstjóra ?
Samkvæmt lögum og reglugerð út-
varpsins, annast útvarpsstjóri allt það,
sem lýtur að rekstri útvarpsins, skrif-
stofuhald, daglega stjórn og fjárreiður
útvarpsins, gerir árlega fjárhags- og
rekstraráætlun, annast undirbúning dag-
ÚTVARPSTÍÐINDI
3