Útvarpstíðindi - 01.03.1953, Qupperneq 6
JÓNAS ÞORBERGSSON
LÆTUR AF EMBÆTTI
Jónas Þorbergsson útvarpsstjóri lét af
embætti sínu um s. 1. mánaðamót, eftir
rúmlega-20 ára gifturíkt starf sem fyrsti
forstöðumaður íslenzka Ríkisútvarpsins,
og jafnframt sá maður, sem drýgstan
þátt hefir átt í vexti þess og viðgangi.
Hér er því miður ekki rúm til að skrifa
þá sögu, en vonandi eiga Útvarpstíðindi
eftir að gera henni fyllri skil. En nafn
Jónasar útvarpsstjóra mun ætíð verða
nátengt þroskasögu ísl. Ríkisútvarpsins,
allt frá byrjunar viðleitni þess og fram á
þennan dag, en nú eru „íslendingar
komnir í fremstu röð þjóða um útvarps-
not“, eins og fráfarandi útvarpsstjóri
komst að orði í kveðjuávarpi er hann
flutti í útvarpið 27. jan. s. 1.
Hann segir ennfremur í sama ávarpi:
„Ég álít, að hvorki ráðamenn fjár og
framkvæmda í landinu né þjóðin í heild
hafi enn sem komið er, gert sér fulla
grein fyrir því, hvers virði útvarpið
hefir verið og muni verða þjóðinni. —
Menn láta sér sjást yfir það, að útvarps-
dagskráin hefir lyft þekkingarstigi allr-
ar þjóðarinnar til stórra muna. Menn
láta sér sjást yfir það, að útvarpið er
farvegur þeirrar andlegu sköpunar-
orku, sem býr með þjóðinni.“
Það er von Útvarpstíðinda, að bæði
ráðamenn fjár og framkvæmda og þjóð-
in í heild, gefi gaum að þessum orðum
Jónasar Þorbergssonar og skilji til fulls
hvílík lyftistöng útvarpið hefir orðið
menningu vorri og öllum andlegum að-
búnaði, en þá mun líka þáttur fráfar-
andi útvarpsstjóra einnig metinn að
verðleikum.
Við höfum fengið leyfi Jónasar til að
birta í þessu blaði niðurlagið á kveðju-
ávarpi hans, til hlustenda, sem vitnað er
í hér að framan. Að beiðni Þjóðminja-
safnsins var þessi ræða tekin á plötu
úr varanlegu efni, og verður þannig
rödd fyrsta útvarpsstjórans á íslandi
varðveitt í safninu um langan aldur.
„Ég er kominn hér til að kveðja og ég
er kominn til að þakka öllum þeim, sem
hafa auðsýnt mér drengskap og vináttu
og stutt mig í starfi síðan 1930. Ég hefi
þegar nefnt nöfn nokkurra þeirra
manna, sem hafa unnið frumstörf í hin-
um ýmsu greinum. Enn eru þó margir
ótaldir, en vandratað er meðalhófið.
Guðrún Reykholt var fyrsti starfsmaður
minn í útvarpinu og hún vinnur þar
enn. Meðal fyrstu starfsmanna, sem enn
vinna í stofnuninni, eru þeir Dagfinnur
6
ÚTVARPSTÍÐINDI