Útvarpstíðindi - 01.03.1953, Blaðsíða 8
Þið hafið alveg nýiega glatt mig með
fögru samkvæmi, hlýjum orðum, sæmt
mig hrósi, fært mér og konunni minni
fagrar gjafir. Ykkur þakka ég alveg
sérstaklega, þegar vel tekst um samstarf,
svo langt sem hér um ræðir — um þriðj-
ungsskeið verkfærrar ævi — þá verða
slit samvista og samstarfs ávallt bundin
sársauka.
Og hví skyldi mér hrósað og þakkað
en'ykkur gleymt? Hví skyldi ykkur
gleymt, sem hafið unnið nálega allt verk-
ið. Þið og ýmsir, sem farnir eru, hafið
byggt upp heilar starfsdeildir. Þið hafið
með eljusemi ykkar og dugnaði í starfi
gert það fært, að þoka málefnum út-
varpsins og vexti þess til þeirra marka,
þar sem við stöndum í dag. Og þið hald-
ið áfram að starfa þótt ég hverfi úr
hópnum. — Og maður kemur í manns
stað. Ég óska eftirmanni mínum í þessu
starfi, hver sem hann verður, til ham-
ingju. Ég vona og bið þess, að með hon-
um og ykkur megi takast gott samstarf.
Og ég heiti á ykkur að veita honum
samskonar brautargengi og þið hafið
veitt mér. Ég kveð ykkur öll fullviss
um það, að yfir 20 ára samstarf hverf-
ur ekki né glatazt. Það heldur áfram að
vera í lí-fi okkar sjálfra og í lífi þjóðar-
innar — og það heldur áfram að vaxa.
Og svo að lokum nokkur varnaðarorð
til þjóðarinnar. í dag, við brottför, er ég
mér þess meðvitandi, að hafi ég unnið
nokkurt happaverk í þjónustu Ríkisút-
varpsins, þá var það sú tilhlutun mín,
að fá tekin inn í 5. gr. útvarpslaganna á-
kvæðin um það, að við útvarpið skuli
ríkja skoðanfrelsi og fyllsta óhlut-
drægni gagnvart öllum flokkum og
stefnum í almennum málum, atvinnu-
stofnunum, félögum og einstökum
mönnum. Vegna þessara ákvæða hefir
Ríkisútvarpið getað þjónað sönnu lýð-
ræði. Það hefir getað risið yfir og stað-
ið óháð pólitískri flokkabaráttu. Vegna
þessara ákvæða hefir það getað ástund-
að sannindi og þjcnað óhlutdrægni og
sönnu réttiæti. Því er almennt treyst, að
útvarpið vilji segja satt cg rétt frá stað-
reyndum. Þess er almennt krafizt, að
það virði og verndi í starfi sínu jafnan
,rétt allra manna. —
Fyrir því verða þetta mín síðustu
varnaðarorð og eggjan: Standið fast á
verði, íslendingar, um þessa helgu
skyldu, um þennan helga rétt.
Góða nótt.“
Nokkrar erlendar útvarpsstöðvar
Banmörk: Kalundborg I 1224 m. Kaup-
mannahöfn 202 m (aðeins kl. 19,15—22).
Stuttbylgjur 49,50 m (kl. 18,40—22,15).
Svíþjðð: Falun 245 m. Hörby 254,7 m. Gauta-
borg 306,1 m. Stokkhólmur 388,1 m.
Noregur: Stavanger 288 m. Bergen, Kristian-
sand 337,1 m. Oslo 1376 m.
Belgía: Bruxelles 324 m.
England: General Overseas Service 16,99 m,
19,85 m, 25,64 m, 30,53 m. Home Service 434
m, 261 m. Light Programme 1500 m, 247 m.
. Finnland: Helsingfors 538,6 m. Lahti 1181 m.
Frakkland: National 249 m, 347 m. París 498 m,
422 m, 379 m.
Ilolland: Hilversum I 402 m. Hilversum II
298 m.
Ítalía: Róm 355 m.
Þýzkaland: Bayerische Rundfunk 218 m, 375 m,
48,7 m. Berlin Rias 303 m, 439 m. Bremen
220,6 m.
Sviss: Beromunster 567,1 m.
Austurríki: Vín II 203 m.
Séuð þér ánægður með Útvarpstíðindi, þá
ráðið vinum yðar til að kaupa þau. Séuð þér
óánægður með þau, þá ráðið óvinum yðar til að
kaupa þau. —
8
ÚT V ARPSTÍÐINDI