Útvarpstíðindi - 01.03.1953, Qupperneq 13
Þá hefst nýr flókkur í tónlistarkynningu
útvarpsins: Um Bach. Árni Kristjánsson flyt-
ur. Mun Árni flytja æviminningu Bachs eftir
Forker, og er þessi æviminning talin ein
bezta heimild, sem til er um ævi þessa mikla
tónsnillings.
FIMMTUDAGINN 12. MARZ:
Sinfónískir tónleikar: a) Konsert fyrir
flautu, hörpu og hljómsveit eftir Mozart.
(Marcel Moyse, Lily Lasline og hljómsveit
undir stjórn Piero Coppola leika), b) Sinfónía
nr. 1 í C-dur eftir Beethoven (NBC sinfóníu-
hljómsveitin; stjórnandi Toscanini).
FIMMTUDAGINN 19. MARZ:
Sinfónískir tónleikar: a) Fiðlukonsert nr. 2
í g-moll eftir, Prokofjev (Jascha Heifetz og
sinfóníuhljómsveitin í Boston; stjórnandi
Koussevitzky). b) „Symphonic Studies" eftir
Alan Rawsthorne (Philharmonia hljómsveit-
in í London leikur; stjórnandi Constant Lam-
bert).
Þá mun og mega vænta á næstunni strengja-
kvartetts Björns Ólafssonar (Björn Ólafsson,
Josef Felzmann, Jón Sen og Einar Vigfússon).
Kvartettinn leikur í útvarpið kvartetta eftir
Beethoven op. 18, sex talsins, með stuttu milli-
bili. Björn Ólafsson mun flytja inngangsorð
að þessum flokki.
Rögnvaldur Sigurjónsson leikur Píanó-
sónötu nr. 7 op. 83 eftir Prokoffjev. Rögn-
valdur hefur lagt mikla stund á að túlka nú-
tímatónlist. Á tónleikum, sem hann hélt í
vetur, lék hann m. a. þessa sónötu Prokofjevs
og þótti takast með ágætum. Verður í útvarp-
inu bráðlega.
Þá megum við eiga von á, að fluttir verði af
segulbandi tónleikar Elísabetar Haraldsdóttur,
sem haldnir voru í Austurbæjarbíói fyrir
skömmu. Elísabet lék þar píanósónötu í Es-dúr
op. 110 eftir Beethoven og fjögur Impromtu
eftir Schubert. Auk þess lék ungfrúin á klari-
nett með aðstoð Sinfóníuhljómsveitarinnar
klarinettkonsert eftir Mozart. Robert A. Ottós-
son stjórnaði hljómsveitinni.
Samband ísl. karlakóra
25 ára
ÁGÚST BJARNASON
formaður sambandsins.
Samband íslenzkra karlakóra verður
25 ára þann 10. marz n. k. og mun minn-
ast þeirra tímamóta með samsöng Karla-
kórs Reykjavíkur, karlakórsins Fóst-
bræðra, karlakórsins Svanir frá Akra-
nesi og karlakórsins Þrestir frá Hafnar-
firði í Gamla Bíó sunnudaginn 15. marz.
Væntanlega verður samsöngnum út-
varpað, og munu margir hlustendur
hugsa gott til, því kórsöngur, og þá ekki
sízt karlakórsöngur hefir jafnan notið
mikillar hylli þeirra.
Innan sambandsins eru nú 17 kórar,
er telja samtals um 500 kórfélaga. For-
maður þess nú og undanfarin ár er
Ágúst Bjarnason.
ÚTV ARPSTÍÐINDI
13