Útvarpstíðindi - 01.03.1953, Page 18
. . • og að lokum
Hverjir voru vinsælustu
útvarpsmenn ársins 1952?
Útvarpstíðindi efna nú til atkvæða-
greiðslu meðal lesenda sinna um það,
hvaða útvarpsmenn ársins 1952 nutu
almennastra vinsælda á því herrans ári.
Er nánar gert grein fyrir þessari skoð-
anakönnun á sjálfum atkvæðaseðlinum,
sem fylgir þessu hefti. Það er von okk-
að, að þátttaka í þessari atkvæðagreiðslu
verði sem almennust, því vafalaust hafa
allir sínar ákveðnu skoðanir í þessum
efnum. Erlendis fara slíkar atkvæða-
greiðslur fram um hver áramót og njóta
mikilla vinsælda.
Að þessu sinni munum við ekki hafa
þessa könnun yfirgripsmeiri en það, að
aðeins er greitt atkvæði um fjóra á-
kveðna dagskrárliði. En í framtíðinni
hyggjum við að geta haft þessa könnun
fjölbreyttari og væri okkur ljúft, að fá
tillögur, sem flestra lesenda um, hvaða
tilhögun þeir telji heppilegasta.
Niðurstöður þessarar skoðanakönn-
unar munum við birta í aprílhefti Út-
varpstíðinda, og gæti þá svo farið, ef
þátttaka verður almenn, að a. m. k.
fjórum ákveðnum útvarpsmönnum finn-
ist meira til um sig en áður, þegar þau
úrslit verða birt.
Við mælumst mjög ákveðið til þess
við ykkur, sem áhuga hafið fyrir út-
varpi, að þið takið þátt í þessari at-
kvæðagreiðslu, ekki sízt vegna eftirlæt-
ismanna ykkar við hljóðnemann.
Og þótt þið í framtíðinni virðist eiga
að fá nóg tækifæri til að neyta atkvæð-
isréttar ykkar, bæði við alþingiskosn-
Til leiðbeiningar við
atkvœðagreiðsluna:
I*essir sáu um ákveðið útvarpsefni:
Óskalög sjúklinga: Björn R. Einarsson. Ingi-
björg Þorbergs.
íslcnzkt mál: Björn Sigfússon. Bjarni Vil-
hjálmsson.
Búnaðarþáttur: Gísli Kristjánsson.
Djass þáttur: Jón Múli Árnason. Svavar Gests.
Hæstaréttarmál: Hákon Guðmundsson.
Undir ljúfum lögum: Carl Billich.
Óskastundin: Ben. Gröndal.
Heyrt og séð: Jónas Árnason.
Skólaþáttur: Helgi Þorláksson.
Sitt af hverju tagi: Pétur Pétursson.
íþróttaþáttur: Sig. Sigurðsson.
Gamlar minningar: Bjarni Böðvarsson.
Hvcr veit: Sveinn Ásgeirsson.
Útvarpssagan: Andrés Kristjánsson. Krist-
mann Guðmundsson. Guðm. Hagalín. Hersteinn
Pálsson. Helgi Hjörvar. Karl ísfeld. Ragnheiður
Hafstein. Ragnar Jóhannesson.
Hr. B. var að barma sér við G. vin sinn, yfir
heimilisvandræðum sínum: „Mér er orðið ó-
mögulegt að búa lengur með konunni minni. Nú
heimtar hún að fá að hafa geit inni í svefnher-
berginu."
„Nú, jæja,“ sagði G. sefandi. „Ekki myndi ég
setja það fyrir' mig. Hafðu bara gluggann op-
inn.“
„Ertu vitlaus!" öskraði B. „Og hleypa öllum
dúfunum mínum út.“
ingarnar í vor og svo í sambandi við
héraðabönnin, þá vonum við, að þið
teljið ekki síður þessa atkvæðagreiðslu
Útvarpstíðinda ómaksins verða, og not-
ið atkvæðaseðil blaðsins til að tjá hug
ykkar til þeirra útvarpsmanna, er mesta
ánægju veittu ykkur á s. 1. ári.
18
ÚTVARPSTÍÐINDI