Útvarpstíðindi - 03.05.1948, Blaðsíða 24
192
ÚTVARPSTÍÐrJ'TDI
l&fid&Ífi)
VÉTURINN 1948
Gamall maður fyrir Norðan, Björn frá
Gili, sendir eftirfarandi vísur um veturinn,
sem var að líða.
Veturinn hefur varist snjó,
vafinn geisla rúnum.
Frá nýári til Þorra þó
þungum hleypti brúnum.
Þorri stundum þunglyndur,
þóttu margir segja.
Gjörðist nú svo góðlyndur,
glöð sem yngismeyja.
Engan betri brúðarkoss
birtir nokkur saga.
Góa hefur gefið oss
gleðiríka daga.
Einmánaðar köld var kinn
klaka herti sporið.
Er nú liðinn uppgefinn.
Yfir hann breiðist vorið.
PÁLL ISÓLFSSON
Dalbúi sendir eftirfarandi vísu til Páls
tsólfssonar.
Yndis stunda væri von
og vetrar styttist gríma
ef að doktor ísólfsson
ætti næsta tíma.
DAGSKRÁIN
Sama hlustenda datt þessi vísa í hug
þegar honum bárust Útvarpstíðindi fyrr en
vænta mátti.
tlt er komin útvarpsskrá,
á undan tíma settum.
Ég held að megi hlusta þá
á hjal að loknum fréttum.
KVEÐJA TIL OLGU HJARTAR
Gísli Vagnsson sendir eftirfarandi ljóo
með þökk fyrir sönginn í barnatímanum á
annan páskadag síðastliðinn.
Olga Hjartar, Olga!
þú átt að syngja ljóð,
það svæfir mínar sorgir,
þín söngrödd er svo góð.
Ég blessa hverja bylgju,
sem berst frá vörum þér,
í töfrum djúpra tóna
— og tileinka þær mér.
0, syngdu mig í svefninn,
þá sofna ég svo rótt;
og dreymir fagra drauma,
hve dýrðleg er sú nótt!
Olga Hjartar, Olga!
þú ert svo mild og góð.
í öllum „óskalögum"
þú átt að syngja ljóð.
Happdrætti
Háskóla
ísiands
Dregið verður í 5. flokki 10. maí.
— Dregnir verða út 400 vinning-
ar. Að upphæð 138.500 krónur.
Hæsti vinningur 15 þús. lcrónur.
Dragið ekki að endurnýja. *
Happdrætti
Háskólans