Árdís - 01.01.1958, Blaðsíða 25
Ársrit Bandalags lúterskra kvenna
23
Menntaskólinn í Reykjavík
Efíir ungfrú Guðríði Erlendsdótiur
Menntaskólinn í Reykjavík er langelzta menntastofnun íslend-
inga. Rekja má sögu hans allt aftur til ársins 1552, en það ár gaf
Kristján III. Danakonungur út tilskipun þess efnis, að stofnaður
skyldi sinn latínuskólinn á hvoru biskupssetrinu, Skálholti og
Hólum. Skálholtsskólinn var fluttur til Reykjavíkur eftir móðu-
harðindin 1787 og nefndist þá Hólavallarskóli eftir staðnum, sem
hann var reistur á. Árið 1805 var Hólavallarskóli fluttur að Bessa-
stöðum og starfaði hann þar, unz hann var fluttur aftur til Reykja-
víkur 1846 og flutti hann þá í þau sömu húsakynni, sem hann býr
enn við.
Á hverju vori eru brautskráðir þaðan á annað hundrað stúdentar
og þar hafa margir ágætustu menn íslands fengið sína menntun.
Skólinn getur ekki tekið við öllum þeim fjölda, sem vill stunda
þar nám og til að takmarka aðsókn, þurfa allir, sem í skólann viija
fara, að taka hið svo kallaða Landspróf, og þeir sem ná því prófi
hafa rétt til að stunda nám í Menntaskólanum. Nám í Menntaskólan-
um er undirbúningur undir framhaldsnám, ekkert lokatakmark,
segja má að leitast sé við að búa hvern nemanda betur undir lífs-
baráttuna og þar uppsker hver eins og hann sáir. Innan veggja
skólans er lítill heimur út af fyrir sig, þar skiptist á skin og skúrir,
glaðzt með glöðum, hryggzt með hryggum. Þar ríkir hinn sanni
mennta-andi og heyra má þar skóhljóð margra kynslóða og sá, sem
ávaxtar vel sitt pund þau fjögur ár, sem menntaskólanám tekur,
kveður skólann þroskaður og menntaður maður, sem umgengst
samtíðarbræður sína með umburðarlyndi og víðsýni. Ég tel það því
mjög mikið lán hverjum þeim unglingi, sem á þess kost að stunda
þar nám.
Flestir telja Menntaskólaárin skemmtilegasta tíma ævinnar.
Félagsskapurinn, höpp og glöp, allt virðist skemmtilegt eftir á, og
þegar við lítum til baka sjáum við ljósu hliðarnar, en viljum gleyma
hinum, sem þó voru oft þungar og margar. Til skamms tíma hef ég
staðið í þeirri trú, að aðeins fólk, sem komið er á raupsaldurinn