Morgunblaðið - 04.01.2009, Síða 11

Morgunblaðið - 04.01.2009, Síða 11
Morgunblaðið |11 Hjá Storknum er hægt að sækja ýmiss konar námskeið í handavinnu, en fyrirtækið er fyrst og fremst þekkt fyrir prjónanámskeið. Nú á vorönn verða þó einnig námskeið í hekli, bútasaumi og prjónaveskjagerð. Ýmiss konar fylgihlutir „Námskeið hafa verið haldin hjá okkur árum saman og alltaf verið næg eftirspurn. Þó finnum við nú fyrir aukinni eftirspurn frá yngri konum á aldrinum 20 til 30 ára sem gjarnan eru þá að prjóna barnaflíkur á vænt- anleg börn. Það er þægilegt að byrja á slíkum flíkum, til dæmis barnapeysum en annars prjóna þær allt mögu- legt á börnin,“ segir Guðrún Hannele Henttinen hjá Storknum. Auk hefðbundinna námskeiða í prjóntækni og framhaldsnámskeiðs í prjóni, fyrir þá sem hafa góð- an grunn eða hafa verið áður á námskeiði, verða einnig í boði ýmsar nýjungar nú á vorönn. Þar má fyrsta nefna prjónaveskjagerð þar sem nemendur hanna og sauma sín eigin veski utan um prjónana og þá fylgihluti sem prjónaskapnum fylgja svo sem nælur og skæri. Slík námskeið eru þriggja kvölda en einnig verður haldið tveggja kvölda námskeið í bútasaumi í höndum þar sem kennd verður aðferð við að koma saman flóknum form- um í höndum. Þá verður haldið morgunnámskeið í prjóni og hekli þar sem kennt er fyrir hádegi einu sinni í viku í fimm vikur. Það námskeið er ætlað öllum þeim sem eiga heimangengt að degi til og er á hagstæðara verði. Bætt við kunnáttuna Hámarksfjöldi nemenda á námskeiðum Storksins er tíu og þá eru tveir kennarar með hópinn. „Okkur finnst mikilvægt að veita góða þjónustu og í verklegri kennslu er betra að hafa hópana litla, enda þurfa nemendur mikla hjálp á ákveðnum tímapunkti sem við viljum geta veitt,“ segir Guðrún. maria@mbl.is Morgunnámskeið í hekli Krúttulegir Margir prjóna föt og skó á börn á námskeiðunum. Frá unga aldri er gott að venja börnin á að læra fyrst og leika svo. Þegar komið er heim úr skólanum er gott að setja þá reglu að börnin fái sér eitthvað gott í gogginn eins og samloku sem er tilbúin í ísskápn- um eða ávexti, mjólk og kex. Síðan eigi þau að klára heimalærdóminn áður en farið er að leika sér eða haldið í tómstundaiðju. Það getur verið skemmtilegra fyrir börnin að læra saman, en hjá sumum getur slíkt vissulega truflað einbeit- inguna. Komist slíkt upp í vana eiga þau auðveldara með skipulag og heimanám þegar fram í sækir. Læra fyrst og leika svo Mikilvægt er að byrja daginn vel áður en haldið er út í daginn, en það sama á við ætlir þú að læra heima við. Reyndu fyrst af öllu að hafa svefntímann reglulegan svo þú getir vaknað snemma enda gefur morgunstund gull í mund. Farðu síðan í góða sturtu og klæddu þig í eitthvað þægilegt og hlýtt. Fáðu þér góðan morgunmat og taktu þér þinn tíma í að vakna almennilega. Skrifaðu niður hvað þú ætlar að komast yfir að gera þann daginn og láttu síðan hendur standa fram úr ermum. Byrjaðu daginn vel

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.