Morgunblaðið - 04.01.2009, Blaðsíða 25
Morgunblaðið |25
HÁSKÓLABRÚ
Markviss undirbúningur fyrir háskólanám
Háskólabrú er samstarfsverkefni Keilis og
Háskóla Íslands og býður deildin upp á aðfarar-
nám á vegum HÍ fyrir einstaklinga sem ekki hafa
lokið stúdentsprófi. Að loknu námi uppfylla
nemendur almenn inntökuskilyrði innlendra
háskóla og telst námið almennt sambærilegt
stúdentsprófi samkvæmt samningi Keilis, HÍ
og Menntamálaráðuneytisins.
Háskólabrú veitir útskrifuðum nemendum rétt
á að sækja um nám í nánast öllum deildum HÍ
auk náms við Háskólann í Reykjavík, Háskólann
á Akureyri, Listaháskóla Íslands, Háskólann á
Hólum og Landbúnaðarháskólann á Hvanneyri.
Nemendur við Keili njóta forgangs að glæsilegum
og rúmgóðum nemendaíbúðum á góðu verði.
Námið er lánshæft hjá LÍN og má stunda jafnt
í staðnámi sem fjarnámi.
Umsóknarfrestur er til 20. janúar 2009.
Fræðslunámskeið Greiningar- og ráðgjafarstöðvar ríkisins eru
ætluð þeim sem vinna með börnum með þroskaraskanir og eru
jafnframt opin aðstandendum. Námskeiðin eru bæði fræðileg
og hagnýt.
Meðal þess sem verður í boði á vormisseri:
Upplýsingar og skráning á námskeið er á www.greining.is
Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins
NÁMSKEIÐ Vor 2009
• Aspergersheilkenni og
skyldar raskanir
• Atferlisþjálfun fyrir börn með
einhverfu
• Börn með Downsheilkenni
• Börn með hreyfihömlun
- leiðir að betri hegðun og
líðan
• Börn með þroskaraskanir
- nám, hegðun og félagsleg
þátttaka í grunnskóla
• Einhverfa og aðrar raskanir á
einhverfurófi
• Jákvæðar leiðir til bættrar
hegðunar
• Leikur og félagsfærni
• Ráðagóðir foreldrar –
námskeið í hegðunarstjórnun
• Ráðagóðir kennarar
– hagnýtt námskeið fyrir
kennara
• Skipulögð kennsla, byggð á
hugmyndafræði TEACCH
• Tákn með tali
ofl.
Eftir Maríu Ólafsdóttur
maria@mbl.is
Ánámskeiðinu eru kennd-ar leiðir hugrænnar at-ferlismeðferðar til aðskoða og breyta hugs-
unum og viðbrögðum sem viðhalda
kvíða og depurð. Auk þess eru
kenndar öflugar slökunar- og hug-
leiðsluaðferðir. „Við höfum prufu-
kennt námskeiðið þar sem fram
kom að árangur var mjög góður. Í
námskeiðinu leggjum við upp með
nýjar áherslur þar sem við hjálp-
um fólki að öðlast hugarró og
beita leiðum til að það láti hlutina
ekki hafa alltof mikil áhrif á sig.
Það má segja að geti maður gert
hlutina með stóískri ró og ætli sér
ekki of mikið þá líði manni tölu-
vert betur. Ég myndi segja að
kvíði sé nokkuð stórt vandamál í
þjóðfélaginu og kannski sér-
staklega í dag,“ segir Sóley D.
Davíðsdóttir sem kennir nám-
skeiðið ásamt Odda Erlingssyni,
en bæði eru þau sérfræðingar í
klínískri sálfræði.
Að njóta líðandi stundar
Á námskeiðinu er miðlað af
þeim aðferðum sem hafa borið
hvað bestan árangur við kvíða,
streitu og depurð. Sérstök áhersla
er lögð á að kenna tækni sem heit-
ir árvekni, eða mindfulness á
ensku, sem Sóley segir að njóti nú
mikilla vinsælda og sé kölluð
þriðja bylgjan í sálfræði. Árvekni
er enduruppgötvun tækni sem not-
uð hefur verið í nokkur þúsund ár
í þeim tilgangi að ná nokkuð fljótt
góðri líðan. „Árvekni er í raun að
taka eftir því sem kemur í gegnum
skynfærin, til dæmis þegar fólk
heyrir fallega tónlist og njóta þess
sem maður er að upplifa án þess
að festast í hugsanagangi sínum.
Við plönum svo mikið í huganum
eins og hvað við ætlum að gera á
morgun, hvernig fjármálin fari og
annað slíkt. Auk þess eigum við
það til að velta okkur upp úr ein-
hverju sem hefur klúðrast í fortíð-
inni og muni mögulega klúðrast í
framtíðinni. Tæknin snýst því um
að komast frá slíkum hugsunum
og vangaveltum sem maður flæk-
ist oft í. Þessi æfing er í sjálfu sér
ekki ætluð til að slaka á heldur til
að sjá raunveruleikann eins og
hann er en hliðarverkunin er slök-
un. Það er að segja að fólk hvílist
ef það kemst aðeins frá hugsunum
sínum,“ segir Sóley.
Tekið eftir hugsunum
Sóley segir rauða þráðinn í
námskeiðinu vera annars vegar að
kenna fólki að skoða hvernig það
hugsar þar sem hugsanir geta gert
mann ótrúlega kvíðinn eða dapran.
Þjálfist fólk í því að taka eftir
hugsunum sínum, skoða hvort þær
séu endilega réttar og þá breyta
þeim ef svo er ekki, hjálpi það
mikið til. Á hinn bóginn er miðað
að því að fólk hugsi ekki of mikið
og festist í gagnslausum vanga-
veltum. Einnig er kennd slökun og
góðar aðferðir til að skipuleggja
sig þar sem fólk verður oft stress-
að af því að taka að sér allt of
mikið og því nauðsynlegt að læra
að setja ákveðin mörk og segja
nei. Oddi hefur sérhæft sig í slík-
um aðferðum og kennir þann hluta
námskeiðsins. Loks er einblínt á
leiðir til að leysa ágreining og eiga
farsæl samskipti við fólk því ein
helsta ástæða fyrir kvíða er þegar
eitthvað fer úrskeiðis í sam-
skiptum. Í þessu samhengi er fólki
kennt að taka gagnrýni án þess að
fara í vörn og þannig að það geti
tekið til sín það sem við á án þess
að líða illa. Að ná sínu fram í sam-
skiptum við aðra vilji maður að
þeir taki sig á að aðstoða mann er
einnig æft.
Heilmikið hægt að gera
Á námskeiðinu er kennt í hópum
þar sem tæknin sem fólk hefur
verið frætt um fyrri part kennslu-
stundar er æfð. Þá eru samskipti
þjálfuð með hlutverkaleikjum.
„Kvíði er óþægilegur og truflar
mann ef hann verður mikill en
hann er ekki hættulegur. Hámark
kvíðans er kvíðakast þar sem
steypist yfir mann skelfing. Það er
hægt að gera heilmikið til að ná
tökum á kvíða og stundum þarf
fólk að gera smá lífstílsbreytingar,
setja sér skýrari mörk og skipu-
leggja sig,“ segir Sóley.
Kvíði er óþægilegur en ekki hættulegur
Morgunblaðið/Ómar
Öflugar aðferðir Sóley D. Davíðsdóttir og Oddi Erlingsson hjálpa fólki að takast á við kvíða.
Kvíði og streita eru
algeng vandamál í nú-
tímasamfélagi þar sem
að mörgu er að hyggja.
Kvíðameðferðarstöðin
býður sérstakt nám-
skeið til að kenna fólki
að takast á við vanlíðan,
álag og spennu.
AUGLÝSINGASÍMI 569 1100