Morgunblaðið - 04.01.2009, Qupperneq 20

Morgunblaðið - 04.01.2009, Qupperneq 20
Eftir Svanhvíti Ljósbjörgu svanhvit@mbl.is Tónlist kemur ekki bara ut-an frá heldur verður húnfyrst til inni í okkur. Þaðsést á börnum því um leið og þau heyra tónlist bregðast þau við,“ segir Helga Rut Guðmunds- dóttir, lektor í tónmennt á mennta- vísindasviði Háskóla Íslands. „Að sama skapi byrja börn að hreyfa sig í takt við tónlist um leið og þau geta hreyft sig. Það geta allir fundið tón- listina í sjálfum sér því allir hafa einhverja tónlist í sér og öll höfum við einhverja tónlistarhæfileika. Það hafa allir ánægju af að njóta tónlist- ar. Aftur á móti gerum við mikið af því að láta börn vera óvirka hlust- endur eða þiggjendur. Um leið og þau byrja að hreyfa sig og geta haldið á eggjahristu, 4-6 mánaða gömul, þá beita þau hristu í takt við tónlist af mikilli ánægju og í sínum eigin takti en það er tónlistin sem knýr áfram þessi viðbrögð. Þau bregðast við tónlistinni í sjálfum sér. Það er nokkuð sem við gleym- um oft að þroska.“ Sérstök upplifun Helga Rut rekur tónlistarskólann Tónagull þar sem boðið er upp á tónlistarnámskeið fyrir 0-9 mánaða börn en Helga Rut kynntist þeirri hugmynd erlendis. „Þá var mitt barn einmitt á þessum aldri og mér fannst þetta frekar klikkað en ákvað samt að prófa. Sjálf hafði ég kennt tónlist niður í fjögurra ára aldur og fannst það ungt en þarna féll ég alveg fyrir þessari hugmynd. Ég uppgötvaði nýja nálgun á kennslunni og hve gott þetta var fyrir foreldra og barn. Það var eitt- hvað sérstakt sem gerðist í tím- unum, svona eins og munurinn á því að syngja einn heima eða fara í kór að syngja. Þetta var sérstök upp- lifun,“ segir Helga Rut og bætir við að tímarnir byggist á því að tónlist komi ekki annars staðar frá heldur sé hún innra með okkur. „Við vinnum með það og gleðina af því að nota tónlist sem part af uppeld- inu því tónlist er líka partur af mál- þroska, tilfinningaþroska og tengslum. Það verður einhver sér- stök tenging á milli foreldris og barnsins og þetta er mjög sérstök stund.“ Í tímum Helgu Rutar er lifandi tónlist og hún segir að þar upp- götvi fólk hvernig það getur notað tónlist í daglegu lífi. „Hópurinn hittist einu sinni í viku og svo fá þau disk og bók heim með sér. Tónlistin verður því partur af dag- legu lífi hjá fjölskyldunni. Í tímum er verið að syngja saman, farið með þulur og unnið með ryþmann í tungumálinu. Ég kenni til dæmis skiptiborðsþulur og gælur þar sem verið er að örva barnið, nudda það eða gera ákveðnar hreyfingar með barninu sem eru taktfastar og alltaf við sama lagið. Við dönsum líka einfalda hring- dansa sem allir geta tekið þátt í,“ segir Helga Rut sem segir að tón- listarkennsla með svona ungum börnum sé töluvert frábrugðin hefðbundinni tónlistarkennslu. „Á meðan börnin eru svona lítil eru ákveðin tækifæri til að leggja grunninn og efla tilfinningatengsl. Börn verða líka klárari við alla örvun og þetta er eitt af því sem örvar börn og hvetur þau til þess að taka eftir umhverfinu. Ég er líka oft að benda á það í tímum hvað þessi litlu kríli eru ofboðs- lega klár. Þótt þau virðist liggja, horfa út í loftið og orga þess á milli þá taka þau mjög vel eftir umhverfinu. Tónlist á fyrstu vik- um og mánuðum barns snýst mest um samskipti því tónlist verður til á milli fólks. Foreldri syngur með barninu sínu og barnið byrjar mjög fljótt að taka undir og það sýnir mikil viðbrögð þegar það heyrir lag sem það þekkir. Tón- listin er ein besta leiðin til að hafa samskipti við barn sem er ekki farið að tala.“ Í sínum takti Um leið og börn byrja að hreyfa sig og geta haldið á eggja- hristu þá beita þau hristu í takt við tónlist af mikilli ánægju. Þroskandi Tónlist er líka partur af málþroska, til- finningaþroska og tengslum. Helga Rut Guðmundsdóttir: „Tónlist á fyrstu vikum og mánuðum barns snýst mest um samskipti því tónlist gerist á milli fólks.“ Ein besta leiðin til að hafa samskipti við barn sem ekki er farið að tala er í gegnum tónlist, að sögn Helgu Rutar Guðmundsdóttur. Hún heldur tónlistarnám- skeið fyrir 0-9 mánaða börn og segir að börn séu mjög ung þegar þau bregðist við tónlist. Tónlist verður til á milli fólks Tónlist Um leið og börn heyra tónlist bregðast þau við og þau hreyfa sig líka með tónlist um leið og þau geta. Morgunblaðið/Valdís Thor 20|Morgunblaðið Þegar farið er í skóla eða á nám- skeið skiptir skipulag miklu máli. Reyndu eins og þú getur að skipu- leggja afmarkaðan tíma á hverjum degi fyrir undirbúning og heima- nám þannig að ekki safnist allt upp við lok annar. Fyrir þá sem stunda nám með skóla er afar mikilvægt að skrá niður alla fundi og viðburði sem tengjast hvoru tveggja til að gleyma nú engu. Sumum finnst gott að vera með dagbók til að skrifa niður í eða dagatal á vegg, nú eða hvort tveggja svo ekkert fari fram hjá manni. Gott skipulag Námsgagnastofnun | Laugavegi 166 | S: 535-0400 | upplysingar@nams.is  Upplýsingar um námsefni.  Póstlisti fyrir þá sem vilja fygjast með.  Gagnvirkt námsefni.  Hljóðbækur á mp3 formi.  Kennsluleiðbeiningar til útprentunar.  Fræðslumyndir fyrir skóla. Á er að finna:

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.