Morgunblaðið - 04.01.2009, Side 24

Morgunblaðið - 04.01.2009, Side 24
24|Morgunblaðið Langar þig í háskóla en vantar stúdentspróf? Eftir nám á Háskólabrú Keilis kemst þú í næstum hvaða háskólanám sem er. Eftir Svanhvíti Ljósbjörgu svanhvit@mbl.is Það getur verið erfitt að til-einka sér góða tækni tilað fara yfir námsefni ogmargar leiðir til. Ein af þeim er myndlestur eða Photo reading eins og það nefnist á frum- málinu en Jóna Björg Sætran menntunarfræðingur hjá Náms- tækni ehf. hefur haldið nokkur slík námskeið hér á landi. Jóna Björg segir að í hnotskurn hjálpi mynd- lestur fólki að ná góðri yfirsýn yfir textann á skammri stundu. „Flestir sem koma til mín eru nemendur á háskólastigi eða fólk úr alls kyns fyrirtækjum. Þetta fer þannig fram að á námskeiðunum kemur fólk með námsgögnin sín til að æfa sig. Við leggjum til ákveðin námsgögn til að kenna aðferðirnar en fólk æf- ir sig á því efni sem það vinnur með dagsdaglega.“ Fljótari að lesa Jóna Björg talar um að eftir námskeið í myndlestri sé fólk bæði fljótara að lesa og efnið sitji frekar í langtímaminni en skamm- tímaminni. „Fólk á líka mun auð- veldara með að finna aðalatriðin og hvaða hluti af textanum skiptir máli. Ef ég tek stóra kennslubók sem er skipt í fjóra hluta og hver hluti er fjórir kaflar sem dæmi. Í stað þess að lesa einn kafla í einu les fólk allt að fimm kafla í einu. Fyrst er öll bókin unnin í einu með myndlestri, síðan er hver kafli fyrir sig skoðaður. Þegar búið er að grunnvinna bókina með myndlestr- araðferðinni er auðveldara að fá tengingu á milli kaflanna. Það er gott að vera búinn að innbyrða upplýsingar úr kafla sem er aftar en verið er að vinna með í það og það skiptið, segir Jóna Björg en tekur skýrt fram að þótt aðferðin heiti myndlestur þá er ekki beint verið að lesa myndirnar. „Viðkom- andi fer í slökun og myndles bók- ina án þess að sjá textann skýrt. Þá er ekki verið að hugsa sér- staklega um myndirnar heldur er verið að vinna með textann í bók- inni í gegnum ákveðið ferli. Það er myndlestur. Síðan er unnið með textann áfram í um hálftíma þar sem hluti af textanum er skoðaður skýrt. Síðan er textinn settur til hliðar í einhvern tíma og þá fyrst er hann lesinn. Þetta snýst um að grunnvinna textann á ákveðinn hátt áður en hann er lesinn. Í þessari grunnvinnu er verið að notfæra sér undirmeðvitundina á ákveðinn hátt. Það gerir það að verkum að þú ert bæði fljótari að lesa textann og eins áttu auðveldara með að skynja hvar aðalatriði textans er að finna.“ Mikilvægt að nota aðferðirnar Jóna Björg hefur verið með nokkur námskeið á ári og segir að þeim hafi verið mjög vel tekið. „Ég legg mikla áherslu á að það sé nauðsynlegt fyrir fólk að nota þess- ar aðferðir strax á meðan á nám- skeiðinu stendur. Þeir sem nota að- ferðirnar strax og eru að nota þær á meðan á námskeiðinu stendur ná mjög góðum árangri. Það er ekki nóg að vita um tæknina heldur þarf líka að nota hana. Svipaðar aðferðir hafa verið notaðar í áratugi, bæði í hernaði og eins í trúarbrögðum þar sem fólk hefur þurft að bera skyn á mikið magn af texta og hefur ekki mátt skrifa mikið niður. Það er verið að nýta færni heilans og verið að virkja bæði hægri og vinstri heila samhliða til að geta notfært sér myndlestur. Mynd- lestur er þó ekki einungis fyrir fólk sem er í námi því margir nota lest- urinn til að öðlast meiri orðaforða, bæði í íslenskum og erlendum fræðum.“ Undirmeðvitundin nýtt til að auðvelda lærdóm Með myndlestri á fólk að geta lesið hraðar sem og átt auðveldara með að finna aðal- atriðin í textanum. Með myndlestri er slökun nýtt og unnið með text- ann áður en eiginlegi lesturinn hefst. Morgunblaðið/Valdís Thor Jóna Björg Sætran: „Það er ekki nóg að vita um tæknina heldur þarf líka að nota hana.“ Myndlestur Eftir myndlestur situr efnið frekar í langtímaminni.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.