Morgunblaðið - 04.01.2009, Side 33

Morgunblaðið - 04.01.2009, Side 33
Morgunblaðið/Kristinn. Aftur í skóla Það eru töluverð umskipti að setjast aftur á skólabekk eftir að hafa verið á vinnumarkaði í lengri tíma en ávinningur af aukinni menntun er mismikill á milli kynjanna. Morgunblaðið |33 Kannanir sýna að ávinningur af aukinni menntun er mismikill milli kynjanna. Í rannsókn Capacent Gallup árið 2006 kom til dæmis í ljós að háskólamenntun skil- ar sér að jafnaði í 25 prósent hærri launum fyrir karla en konur, en krónutöluhækkun á daglaunum er þó meiri fyrir karlmenn en konur, bæði í opinbera geir- anum og einkageiranum. Þá sýndi launakönnun VR 2008 fram á að fé- lagsmenn með grunnháskólagráðu voru að meðaltali með 35 prósent hærri laun en þeir sem voru með fram- haldsskólanám og munurinn á launum svarenda með masters- eða doktorsgráðu mældust 55 prósent hærri en laun framhaldsskólastúdenta og 68 prósent hærri en laun þeirra sem aðeins hafa grunnskólapróf. Út frá meðaltölum könnunar VR má reikna með 359 þúsund krónum mánaðarlaunum með framhalds- skólapróf, 485 þúsund krónum með BA eða BS gráðu, og 556 þúsund krónum með master eða doktor. Ef þessar tölur eru svo yfirfærðar á 40 ára starfsævi má reikna með að fyrsta háskólagráðan skili rúmlega 60 milljónum brúttó í ævitekjur, og seinni háskólagráð- an 34 milljónum brúttó til viðbótar. Þá á eftir að draga frá sjálfan kostnaðinn af náminu og töpuðum tekjum á meðan nám er stundað, en einnig þarf að reikna þau bættu lífsgæði sem það getur haft í för með sér að stunda spennandi nám og komast með góðri menntun í draumastarfið. Er gráðan 60 milljóna virði? Það getur verið vandasöm fjár- hagsleg ákvörðun að fara í nám. Bæði þarf að greiða fyrir kennsl- una, en námið getur líka komið niður á launuðum störfum. Náms- lán eru einkum í boði á há- skólastigi og því verður seint hald- ið fram að framfærslulánin dugi að fullu fyrir eðlilegu uppihaldi, hvað þá hjá barnafólki. „Fólk þarf auðvitað að skoða vel skuldbindingar sínar gagnvart öðrum. Ákvörðun um að hefja nám er líklegast tekin í samráði við aðra fjölskyldumeðlimi, til þess að skapa bæði tíma og svigrúm. Miklu skiptir líka að njóta sín í því námi sem maður velur sér,“ segir Jónína Kárdal, náms- og starfs- ráðgjafi hjá Háskóla Íslands. „Að mínu mati auðgar allt nám andann og um leið er verið að búa við- komandi undir fjölbreytt störf á vinnumarkaði. Ávinningur af námi eru aukin tækifæri, bæði persónu- leg og starfsleg.“ Arnheiður Gígja hjá Mími- símenntun segist reikna með að menntun sé yfirleitt góð fjárfest- ing. „Fólk styrkir óneitanlega stöðu sína á vinnumarkaði. Kannski skilar námið sér ekki allt- af í hærri launum, en að sama skapi má reikna með að fólk sem er duglegt að sækja námskeið og dýpka þekkingu sína þyki eft- irsóknarverðari starfskraftar og standi betur að vígi á samdrátt- artímum.“ Sterkari staða Íslensk náttúra Markmið náms í náttúru- og umhverfisfræði er að útskrifa nemendur með góða undirstöðu í náttúrufræðum með sérþekkingu á íslenskri náttúru. Námið tengist störfum við stjórn og skipulag umhverfismála og landnýtingar, mat á umhverfisáhrifum, náttúruvernd, kennslu o.fl. Lbhí býður háskólamenntun til BS- og MS-gráðu. Kynntu þér nám í náttúru- og umhverfisfræði á heimasíðu skólans: www.lbhi.is U M H V E R F IS D E IL D í hávegum höfð Handverkshúsið Bolholt 4, 105 Rvk. Sími: 555 1212 Vefverslun: handverkshusid.is BOLHOLTI TRÉ Tálgun Tifsögun Tréútskurður Tréskúlptúr SKARTGRIPIR Silfurleir Silfurkveiking Silfursteypun Víravirki Perlu- og silfurfestar ANNAÐ Steinaskart Koparsláttur Hnífagerð Brýnsla Leirbrennsla HANDVERKSNÁMSKEIÐ FRÁBÆRIR LEIÐBEINENDUR MEÐ MIKLA REYNSLU HVER Í SÍNU FAGI. Handverkshúsið þjónustar öll verkfæri og efni til ástundunar tengt þessum námskeiðum og miklu meira en það. SKRÁNING OG UPPLÝSINGAR Í S: 555-1212 eða handverkshusid@handverkshusid.is Skráið ykkur á póstlisann á handverkshusid.is og fáið alla námskeiðsdagskrána senda í pósti.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.