Morgunblaðið - 04.01.2009, Síða 38
38|Morgunblaðið
smáauglýsingar mbl.is
Eftir Maríu Ólafsdóttur
maria@mbl.is
Kennsla í skólanum fer fram á þremur stigum,forskóla fyrir 5 til 8 ára, grunnstigi fyrir 8 til15 ára og loks er framhaldsstigið fyrir nem-endur eldri en 16 ára. Þeir geta þá fengið
námið metið til stúdentsprófs og er stórkostlegt að nem-
endur geti tekið hluta af stúdentsprófinu sínu í listgrein.
Fyrir elsta hópinn eru starfræktar innan skólans klass-
ísk listdansbraut og nútímalistdansbraut. Hin síð-
arnefnda hefur verið byggð upp á síðustu árum en með
umsjón hennar fer Andreas Constantinou. Hann lærði
meðal annars hjá Laban-skólanum í London sem okkar
skóli byggir nokkuð mikið á enda mjög viðurkenndur og
öflugur skóli. Við leggjum okkur fram um að fá í heim-
sókn þekkta gestakennara frá hinum ýmsu löndum og nú
í lok janúar fáum við einmitt í heimsókn þriðja árs nema
frá Laban ásamt „kóreógrafernum“ Rosemary Butcher
sem er heimsfræg á sínu sviði. Hún mun halda sýningu
og vinnubúðir fyrir nemendur,“ segir Arna María Gunn-
arsdóttir, markaðs- og kynningarstjóri Klassíska list-
dansskólans.
Góður grunnur
Brautirnir tvær skarast nokkuð en á klassísku braut-
inni læra nemendur einnig nútímadans en minna af hon-
um, auk danssögu, spuna, kóreógrafíu og danssmiðju
sem kennd er á báðum brautum. Kennslan veitir góðan
grunn að framhaldsnámi og reyndar halda margir til út-
landa í slíkt nám áður en þeir eiga í raun að vera tilbúnir.
„Þetta er skóli fyrir þá sem hugsa sér dansinn sem al-
vöru og það eru líka fleiri möguleikar fyrir hendi eftir
slíkt nám nú en fyrir 15 til 20 árum. Listgreinarnar leik-
list, tónlist og dans eru farnar að renna meira saman og
dansmenntun nýtist sem góður grunnur undir alla fram-
komu, sama af hvaða tagi hún er,“ segir Arna María.
Grunnur í klassískum dansi
„Starfsemi skólans hófst í janúar 1994 og við erum fá-
mennur skóli en góður. Ég byrjaði sjálf átta ára gömul
að læra dans á Íslandi og fór síðan utan í 16 ár. Um tíma
dansaði ég í norsku óperunni, fór síðan til Bretlands, Sví-
þjóðar og Frankfurt og var með samning á þeim tveimur
stöðum þegar ég sneri heim. Í skólanum fer fram fjöl-
breytt starf en í vor útskrifum við fyrstu nemendurna af
þriðja ári nútímalistdansbrautarinnar. Hún er mjög
skemmtileg að því leyti að þar er kennd kóreógrafía,
dansrökfræði og allur skilningur á því hvernig eigi að
semja dansa. Það er frábært hvernig hefur verið staðið
að kennslu og árangurinn leyndi sér til að mynda ekki í
nýliðnum prófum þar sem stelpurnar náðu góðum ár-
angri og voru hugmyndaríkar í verkum sínum. Á sama
tíma er metnaður okkar sá að veita sem bestan grunn í
klassískum dansi því þannig ná dansarar mesta og besta
árangrinum,“ segir Guðbjörg Astrid Skúladóttir, stofn-
andi skólans og skólastjóri.
Heilmikið nám
Guðbjörg segir dansnámið vera heilmikið nám og eft-
irsókin sé alltaf að aukast. Frábært er að námið sé metið
til menntaskóla og að unnið sé að því að staðall skólans
sé það góður að ekki sé farið í dansnám eingöngu til að
létta sér menntaskólaárin. „Þetta er alvöru fag og við
leggjum áherslu á það við stelpurnar að prófin séu
strembin og erfið með erlendum prófdómurum. Það er
svo margt í dansinum í dag sem þær geta valið um sem
var ekki hér áður fyrr. Þeir sem hafa dansmenntun geta
meðal annars unnið sem danskennarar, danshöfundar
eða dansmeðferðarfulltrúar svo fátt eitt sé nefnt, en það
hefur sýnt sig að dans getur oft gefið mikið og hjálpað
þeim sem eiga í ýmiss konar vandræðum. Sjálf hef ég
lagt skóna á hilluna, en stundum tek ég stórt stökk og
finn fyrir því daginn eftir,“ segir Guðbjörg í léttum dúr.
Dansinn kynntur börnum
Nú á nýju ári verður tekin upp sú nýjung að bjóða
þeim sem verða fimm ára á árinu og fá ekki frístunda-
styrk að koma í kennslu á laugardögum að kostn-
aðarlausu. Einungis þarf að borga búninginn fyrir börn-
in og er þetta liður í því að kynna dansinn fyrir þeim og
taka þátt í því sem er að gerast í samfélaginu.
Dans Guðbjörg Astrid Skúladóttir (t.v.), stofnandi skól-
ans, segir starfsmöguleika mun fleiri en áður var.
Arna María Gunnarsdóttir „Þetta er skóli fyrir þá sem
hugsa sér dansinn sem alvöru.“
Klassíski listdansskólinn er einkarek-
inn ballettskóli sem viðurkenndur er
af menntamálaráðuneytinu. Hann
hefur þrjú undanfarin ár starfað eftir
námskrá ráðuneytisins þannig að
nemendur fá hluta af dansnámi sínu
metið í framhaldsskólum.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Óteljandi möguleikar
í dansinum
Dansarar framtíðarinnar Forskóli Klassíska listdansskólans er fyrir 5 til 8 ára.
Vorönn 2009
hefst 19. janúar
Morguntímar, dagtímar og kvöldtímar í
flestum greinum myndlistar í byrjenda- og
framhaldshópum fyrir börn og fullorðna.
Innritun hefst 5. janúar
Nýjustu námskeiðin á önninni:
Möguleikar rýmisins, unnið í efni og rými,
52 kennslust.
Kennari: Helgi H. Eyjólfsson
Grafiti og frjáls myndgerð fyrir ungt fólk,
39 kennslustundir.
Kennari: Bjarni Sigurbjörnsson
Skrifstofutími kl. 15:00-18:00
mánudaga til fimmtudaga.
Símar 564 1134, 564 1195 og 863 3934.
Skoðið stundaskrána á vefsíðu
www.myndlistaskoli.is
“Ófyrirgefanlega gaman og nærandi fyrir sálina!”
SKAPANDI
SKRIF
með Þorvaldi Þorsteinssyni
(Skilaboðaskjóðan, Blíðfinns-bækurnar,
Vasaleikhúsið, And Björk of Course…)
* Viltu kynnast sagnameistaranum sem í þér býr?
* Vantar þig leiðsögn og hvatningu?
* Hvort sem þú ert að feta þín fyrstu skref eða hefur reynslu
af skrifum, þá er þetta námskeið sem nýtist þér.
Grunnn‡mskeið:
5. -15. janœar Er að fyllast
2. -12. febrœar Nokkur sæti laus
2. -12.mars Skráning stendur yfir
Framhaldsn‡mskeið:
19. -29. janœar Skráning stendur yfir
Umsagnirþ‡tttakenda;
“Frábært nesti til lífstíðar.”
“Meiriháttar upplifun, - opnar óendanlega möguleika.”
“Fær mann til að hugsa upp á nýtt.”
Námskeiðin eru haldin íRopeYoga setrinu í Laugardalnum.
Nánari upplýsingar er að finna á kennsla.is og í síma 8223699
SKRÁÐU ÞIG NÚNA ÁKENNSLA.IS