Morgunblaðið - 12.01.2009, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 12.01.2009, Qupperneq 2
2 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 12. JANÚAR 2009 Nú bjóðum við síðustu sætin í sólina á Kanaríeyjum 11. febrúar í viku á frábæru sértilboði. Bjóðum ótrúleg kjör á hinu vinsæla Los Tilos íbúðahóteli sem er frábærlega staðsett íbúðagisting í hjarta ensku strandarinnar. Gríptu tækifærið og njóttu lífsins á þessum vinsæla áfangastað á ótrúlegum kjörum. Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is Munið Mastercard ferðaávísunina Birt með fyrirvara um prentvillur. Heimsferðir áskilja sér rétt til leiðréttinga á slíku. Ath. að verð getur breyst án fyrirvara. Kanarí 11. febrúar frá kr. 79.990 Verð kr. 79.990 Netverð á mann, m.v. 2-4 í íbúð á Los Tilos í viku. Sértilboð 11. febrúar. Sértilboð á Los Tilos - síðustu sætin! Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Egill Ólafsson, egol@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björgvin Guðmundsson, fréttastjóri, bjorgvin@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Minningar mbl.is/sendagrein, Stefán Ólafsson, Arnór Ragnarsson Íþrótt- ir sport@mbl.is Sigurður Elvar Þórólfsson, seth@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is Sunnudagur Ragnhildur Sverrisdóttir, ritstjórnarfulltrúi, rsv@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Eftir Ingu Rún Sigurðardóttur ingarun@mbl.is SKOÐAÐ verður hvort ástæða sé til að breyta íslenskri löggjöf og veita dómurum heimild til að ákveða að for- eldrar skuli fara sameiginlega með forsjá barns þrátt fyr- ir að annað foreldrið sé því andvígt. Þetta verður eitt af verkefnum nýskipaðrar nefndar, sem Björn Bjarnason dómsmálaráðherra hefur skipað til að fara yfir reglur barnalaga um forsjá, búsetu og umgengni. Við endur- skoðunina hefur nefndin að leiðarljósi að þarfir og hags- munir barnsins eigi að vera í öndvegi. Í ljósi hefðar verð- ur við vinnuna gefinn gaumur að reglum annarra norrænna ríkja, en hér eru lögin líkust þeim dönsku. „Ég er þeirrar skoðunar að það sé fyllilega tímabært að fara í gegnum þetta. Samskipti foreldra um börnin sín og kynhlutverkin og þá sérstaklega hlutverkin gagnvart börnum eru svo sannarlega í mikilli þróun. Þetta er nokk- uð sem löggjafinn þarf að bregðast við,“ segir Hrefna Friðriksdóttir, lektor í sifja- og erfðarétti við Háskóla Ís- lands, en hún er formaður nefndarinnar. Nefndin á enn eftir að koma saman en með henni í nefndinni eru Ingv- eldur Einarsdóttir héraðsdómari, tilnefnd af Dómara- félagi Íslands, og Álfheiður Steinþórsdóttir sálfræðingur, tilnefnd af Sálfræðingafélagi Íslands. „Okkur er falið að hafa gott samráð við alla hags- munaaðila og við munum leggja okkur fram um það. Við munum væntanlega byrja á því að ræða þróunina sem hefur verið hér á landi og annars staðar á Norðurlöndum. Svo munum við leita sjónarmiða annarra sem hafa látið þessi mál sig varða. Þar á meðal er Félag um foreldra- jafnrétti, Félag einstæðra foreldra, Félag um stjúptengsl og jafnvel fleiri.“ Að því búnu mun nefndin vinna skýrslu „og ef við teljum þörf á að breyta lögunum munum við vinna tillögur um lagabreytingar“. Félag um foreldrajafnrétti er óánægt með að nefndin skuli einvörðungu skipuð konum en fagnar því að barna- lög verði endurskoðuð. Eitt af því sem félagið segir nauð- synlegt að skoða er að umgengnismál verði færð inn í al- menna dómskerfið, að því er fram kemur í frétt félagsins. „Fyllilega tímabært“  Dómari geti ákveðið sameiginlega forsjá  Ný nefnd sem ráðherra skipar skoðar breytingar á barnalögum  Þarfir barnsins settar í öndvegi Í HNOTSKURN » Samkvæmt gildandirétti getur annað for- eldrið ávallt krafist nið- urfellingar sameiginlegrar forsjár. » Ísland er eina norrænalandið þar sem dómarar mega ekki úrskurða um sameiginlega forsjá. » Verði niðurstaða nefnd-arinnar sú að veita eigi dómurum heimild til þess skal nefndin taka afstöðu til þess við hvaða aðstæður það komi til álita. KAYAKKLÚBBURINN stóð fyrir tveimur nám- skeiðum í innilauginni í Laugardalnum um helgina. Annars vegar byrjendanámskeiði, sem Magnús Sigurjónsson kajakkennari segir að ætti að vera skylda áður en fólk hætti sér út á sjó, og hins vegar veltunámskeiði. Á byrjendanámskeiði er kennd umgengni við bátinn, áratækni, fé- lagabjörgun, áraflot og stuðningsáratök. Næsta námskeið verður helgina 21.-22. febrúar. Réttu áratökin áríðandi Morgunblaðið/Kristinn LOÐNULEIT hefur tafist um helgina vegna slæmskuveð- urs á miðum úti fyrir Norðurlandi. Haf- rannsóknaskipið Árni Friðriksson lá í vari við mynni Eyja- fjarðar frá laug- ardagskvöldi fram á gærkvöldið, en þurfti frá að hverfa um það leyti sem samanburðarmælingu var að ljúka á loðnugöngunni sem fund- ist hefur, en mælst hafa um 293 þús- und tonn af loðnu. Ekki hefur því enn fundist meira. Að sögn Þorsteins Sigurðssonar, sviðsstjóra á nytjastofnasviði hjá Hafrannsóknastofnun, er stefnt að því að klára samanburðarmæl- inguna og halda svo á aðrar slóðir til frekari leitar. Ætlunin er að Árni Friðriksson leiti beggja vegna Kol- beinseyjarhryggjar og haldi svo vestar í leit að annarri göngu. onundur@mbl.is Loðnuleit tafðist í illviðrinu Loðna Miklu skiptir að hún finnist. Árni Friðriksson leit- ar áfram í vikunni ENN eru tvö hross alvarlega veik af salmonellusýkingu sem kom upp við Esjurætur fyrir jólin. Engin skepna úr hópnum hefur því drepist síðan 4. janúar, en að sögn Gunnars Arnar Guðmundssonar, héraðslæknis í Gull- bringu- og Kjósarsýslu, er ekki talið líklegt að hestarnir tveir nái sér á strik. Öll önnur hross úr stóðinu eru nú farin að nærast eðlilega, en eftir allt saman sluppu einungis sex þeirra alfarið við sýkinguna og einkenni hennar. Veiku hestarnir tveir hafa verið fluttir í hesthús í nágrenni Reykja- víkur, úr hesthúsahverfinu í Mos- fellsbæ þar sem þeir voru, vegna smithættu. Gunnar segir að í vikunni hafi verið mokað út úr viðkomandi hesthúsi, gerð jarðvegsskipti við það og sótt- hreinsað. Hitt hesthúsið, Teigur, sem stendur eitt og sér, hefur fengið hreinsun og jarðvegsskipti en verður sótthreinsað í dag, að sögn Gunnars. Tvö hross ennþá veik BÆÐI utanríkisráðuneytið og for- sætisráðuneytið sáu ástæðu til að senda frá sér sameiginlega yfirlýs- ingu í gær þar sem segir að ekki sé ágreiningur um viðbrögð rík- isstjórnarinnar vegna hernaðar- aðgerða Ísraela. „Utanríkisráðherra hefur gefið út yfirlýsingar fyrir hönd ríkisstjórn- arinnar þar sem aðgerðir Ísraela eru fordæmdar. Þetta er hlutverk utanrík- isráðherra að íslenskri stjórnskipun, starfshefð ríkisstjórnar og sam- kvæmt venjum í alþjóðasamskiptum. Á sama hátt fluttu fulltrúar Íslands ræðu í öryggisráði Sameinuðu þjóð- anna í New York og í mannréttinda- ráði Sameinuðu þjóðanna í Genf á fimmtudag og á föstudag um málið. Allar yfirlýsingarnar eru samræmd- ar og fylgja utanríkisstefnu Ís- lands,“ segir í yfirlýsingunni. Sams konar yfirlýsingar „Enginn ágreiningur er um málið í ríkisstjórn og hafa öll helstu skref í nýrri stefnumótun um Mið- Austurlönd sem hófst 2007 á grund- velli stjórnarsáttmálans verið kynnt þar samkvæmt starfsvenjum. Tekið skal fram sérstaklega vegna fréttar Sjónvarpsins á föstudags- kvöld að yfirlýsingar 2001 vegna tví- buraturnanna og 2006 vegna innrás- ar í Líbanon eru sams konar yfirlýsingar ríkisstjórnar og yfirlýs- ingar utanríkisráðherra nú vegna Gaza,“ segir í yfirlýsingunni. Segja ekki ágreining í ríkis- stjórn um aðgerðir á Gaza Morgunblaðið/Golli Fundur Leiðtogar stjórnarflokkanna, forsætisráðherra og utanríkisráð- herra, fullyrða, að ekki sé ágreiningur um stefnuna í málefnum Gaza. Sendu út sameig- inlega yfirlýsingu

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.