Morgunblaðið - 12.01.2009, Qupperneq 9
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 12. JANÚAR 2009
NEYTENDASTOFA hefur tekið til
meðferðar kvörtun íbúa á Akranesi
sem keypti níu mánaða kort hjá
Strætó bs. síðastliðið haust en gat
ekki notað eftir áramót, þegar til-
kynnt var um nýja gjaldskrá og
verulega hækkun frá síðasta ári.
Var Skagamanninum boðið að
skila kortinu og nota inneignina
sem greiðslu upp í nýtt kort. Er
hækkunin meira en tvöföld, eða úr
30 þúsund í 61 þúsund krónur. Þó
er um niðurgreiðslu að ræða fyrir
íbúa Akraness. Aðrir íbúar á sama
gjaldsvæði þurfa að greiða 91.500
kr. fyrir níu mánaða kort.
Tryggvi Axelsson, forstjóri Neyt-
endastofu, staðfesti að erindið hefði
borist og væri nú til meðferðar.
Meðal þess sem íbúinn vildi fá úr
skorið er hvort það standist lög að
breyta verðinu eftir á, og þurfa að
skila inn eldra korti sem upp-
ígreiðslu í nýtt kort. „Við munum
skoða lögmæti þessara skilmála og
afla gagna frá báðum aðilum,“ sagði
Tryggvi. Strætó bs. hóf um áramót-
in akstur milli Reykjavíkur, Akra-
ness, Hvalfjarðarsveitar og Borg-
arness, og einnig austur fyrir fjall
til Hveragerðis og Selfoss. Af því
tilefni tók ný gjaldskrá gildi, sem er
mismunandi eftir gjaldsvæðum.
Sömdu við verktaka
Reynir Jónsson, forstjóri Strætó,
hefur ekki svarað skilaboðum
Morgunblaðsins en á neytendasíðu
Dr. Gunna, þar sem sambærilegt
mál var til umfjöllunar, kom fram í
svari hans að sveitarfélögin hefðu
samið við verktaka um að sinna
þessum akstri. Samhliða hefði verið
gerður nýr samningur við Strætó
bs. Meginbreytingin samfara nýjum
samningi hefði verið að fargjöld
hækkuðu eftir lengd ferðarinnar.
Segir Reynir að vegna þess hve
seint hafi komist á samningur hafi
ekki gefist tími til að taka allar
nauðsynlegar ákvarðanir eða koma
þeim á framfæri við notendur þjón-
ustunnar varðandi fargjöld og
fleira. Af þeim sökum var frítt með
strætó upp á Akranes þar til í gær
og tilboð í boði á strætókortum.
bjb@mbl.is
Neytendastofa með ný
strætókort í skoðun
Strætókort upp á Akranes tvöfölduðust í verði um áramótin
Morgunblaðið/Kristinn
Strætó Fargjöldin upp á Akranesi hafa hækkað verulega en eru þó áfram niðurgreidd.
BREYTINGAR urðu um áramótin
á eignarhaldi Menntaskólans
Hraðbrautar er Nýsir og aðrir eig-
endur seldu eignarhlut sinn í skól-
anum til hjónanna Borghildar Pét-
ursdóttur og Ólafs Hauks Johnson,
skólastjóra skólans. Fyrir áttu þau
helmingshlut í skólanum, en eru
nú einu eigendur hans.
Ólafur Haukur segir þau hafa
mikla trú á því starfi sem þar fer
fram. „Við erum ekki í nokkrum
vafa um ágæti skólans og fjárfest-
ingarinnar í heild sinni,“ segir
hann í samtali við mbl.is. Viðræður
um kaupin á skólanum voru
nokkra mánuði í undirbúningi.
„Við vorum búin að vera að þrýsta
á um þetta eftir að ljóst varð að
Nýsir var kominn í svona erfið
mál.“ Vilyrði hafi síðan fengist fyr-
ir kaupunum rétt fyrir jól, en þó
með fyrirvara um samþykki lán-
ardrottna sem nú hafi veitt vilyrði
sitt.
Engar breytingar eru áætlaðar
á rekstri skólans í nánustu fram-
tíð. Um 150-160 manns stunda nú
nám við Menntaskólann Hraðbraut
sem boðið hefur nemendum að
ljúka stúdentsprófi á tveimur ár-
um.
Eignast Hraðbraut að fullu
-50%
af öllum umgjörðum
mánudag - föstudag
BRIDS
SKÓLINN
- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - -
Byrjendur ... 26. janúar ... tíu mánudagar frá 20-23
Framhald ... 28. janúar ... átta miðvikudagar frá 20-23
- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - -
• Bridsskólinn býður jafnaðarlega upp á námskeið fyrir
byrjendur og fjölbreytt framhaldsnámskeið fyrir þá
sem vilja auka kunnáttuna. Framhaldið er nú með nýju
sniði, þar sem höfuðáherslan er á spilamennsku.
• Námskeið skólans eru haldin í húsnæði Bridssambands
Íslands, Síðumúla 37 í Reykjavík.
• Hægt er að mæta stakur, í pari eða í hóp.
• Mörg stéttarfélög styrkja þátttöku félagsmanna sinna.
• Sjá ennfremur á Netinu undir bridge.is/fræðsla.
- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - -
Uppl. og innritun í síma 898-5427 frá 13-18 daglega.
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
M
bl
.is
M
or
gu
nb
la
ði
ð
Samkvæmt könnun MMR um
traust fólks á aldrinum 18–67
ára til fjölmiðla, dagana
19.–23. des.
Íslendingar
treysta Mbl.is og
Morgunblaðinu
64,3%
mikið traust lítið traust
11,4%
64,0%
8,9%
Þrettándi á þrettánda
ÍSLENSK-ameríska viðskiptaráðið
(IACC) hefur boðið til þrett-
ándafagnaðar á morgun 13. janúar
í New York. Af boði til samkom-
unnar, sem sent var út á Þorláks-
messu, mátti skilja að verið væri að
fagna þrettándanum, síðasta degi
jóla á Íslandi, þennan dag. Sem
kunnugt er voru jólin yfirleitt
kvödd hér á landi 6. janúar. Í boð-
inu kemur fram að á undanförnum
árum hafi verið haldið upp á þrett-
ándann með brennum og álfadansi
á Íslandi.
Hlynur Guðjónsson, fram-
kvæmdastjóri IACC sagði að við-
skiptaráðið hefði ákveðið í fyrra að
færa árlegan jólafund þess fram yf-
ir áramót og tengja hann þrett-
ándanum. Það var gert vegna mik-
illa anna hjá fyrirtækjum þar
vestra fyrir jólin. Hlynur sagði að
þessi breyting hefði gefist mjög vel.
Hann sagði að í síðari tölvupóstum
sem sendir voru út væri gerð nán-
ari grein fyrir því að þrettándinn á
Íslandi væri 6. janúar. Við-
skiptaráðið væri því ekki búið að
færa hinn eina sanna þrettánda.
„Við verðum með Trölla sem stal
jólunum. Stefán Karl leikari verður
ræðumaður fundarins,“ sagði Hlyn-
ur. Sem kunnugt er hefur Stefán
Karl slegið í gegn í hlutverki Trölla
á leiksviði í Bandaríkjunum í vetur.
Í IACC eru bæði íslensk fyrirtæki
sem eru með starfsemi í Bandaríkj-
unum og bandarísk fyrirtæki sem
eiga viðskipti við Ísland og ein-
staklingar.
Skólavörðustíg 21, Reykjavík
sími 551 4050
Glæsileg
brúðarrúmföt
í úrvali