Morgunblaðið - 12.01.2009, Page 10
10 Fréttir
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 12. JANÚAR 2009
Þeir sem voru stærstu hluthaf-arnir í gamla Kaupþingi halda
nú félögum sínum gangandi í þeirri
von að þeir geti jafnað um skuldir
milli félaga sinna og bankans.
Kaupþing fjár-magnaði bæði
Existu, þar sem
Bakkabræður ráða
ríkjum, og Kjalar,
sem er í eigu Ólafs
Ólafssonar, að
stórum hluta.
Þrátt fyrir að þessi félög skuldigamla Kaupþingi háar fjár-
hæðir, marga milljarða, telja eig-
endurnir að þeir eigi háar fjárhæðir
inni í bankanum vegna hagnaðar í
gjaldeyrissamningum.
Þar sem þeir skulda bankanum ogbankinn skuldar þeim vilja þessir
aðilar að skuldajöfnun fari fram. Það
þýðir að skuldirnar jafnist út. Þetta
er þekkt aðferðafræði við þrot fyrir-
tækja og er að finna víðtækar heim-
ildir til skuldajöfnunar til dæmis í
Bretlandi.
Hins vegar getur falist í þessuákveðið óréttlæti gagnvart öðr-
um sem eiga eignir inni í Kaupþingi.
Til dæmis þeim sem fjármögnuðu
bankann en tóku þar ekki lán.
Það getur átt við fjárfesta semkeyptu skuldabréf Kaupþings
eða veittu bankanum lán til að hann
gæti haldið úti starfsemi sinni.
Leið skuldajöfnunar er þessum að-ilum ekki fær. Þeir verða að fara
í röð kröfuhafa og bíða þess hvort
einhverjar eignir verða eftir þegar
búið er að greiða út forgangskröfur
eins og innlán.
Í því ljósi má segja að Ólafur Ólafs-son og Lýður og Ágúst Guðmunds-
synir séu að stytta sér leið. Þeir séu
að ryðjast fram fyrir í röð kröfuhafa
þótt samkvæmt reglum sé.
Lýður
Guðmundsson
Fram fyrir röð kröfuhafa
!
"
#$
%&'
(
)
*(!
+ ,-
.
&
/
0
+
-
12
1
3
42-2
*
-
5
1
%
6!(78
9 4
$
(
!
"#
"#
:
3'45 ;4
;*<5= >?
*@./?<5= >?
,5A0@ ).?
!
!
!
!
!
!
!
!
! !
*$BC
!" !" #$%
& $'
(
*!
$$B *!
$ %&#
%
# '# ('
<2
<! <2
<! <2
$ #&
) *+,"'-
C2
D
<
)"
'* $ + !
+,
$
"-
*$
. /
# 62
!" # 0
$
"- $%
& 1 1
1(
./'00
'#1 '"') *
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://morgunbladid.blog.is/
HALLDÓR STAKSTEINAR
VEÐUR
LÖGREGLAN á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði
kannabisræktun í fjölbýlishúsi í Grafarholti á
föstudag.
Í tilkynningu sagði, að við húsleit hefðu fund-
ist um 70 kannabisplöntur, þar af margar á loka-
stigi ræktunar. Jafnframt var lagt hald á ýmsan
búnað sem tengdist starfseminni.
Kona á fertugsaldri var handtekin í þágu
rannsóknar málsins en hún hefur áður komið við
sögu hjá lögreglu vegna fíkniefnamála.
Þá má einnig nefna, að lögreglan á Blönduósi
fann um 30 g af hassi við húsleit á Skagaströnd
og var eigandi þess yfirheyrður.
Að sögn lögreglu eru þessar aðgerðir liður í að
hamla gegn sölu og dreifingu fíkniefna en sem
fyrr minnir lögreglan á fíkniefnasímann 800-
5005.
Í hann má hringja nafnlaust til að koma á
framfæri upplýsingum um fíkniefnamál. Fíkni-
efnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og toll-
yfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefna-
vandann.
Fundu kannabisplöntur og hass
Lögreglan hvetur fólk til að leggja henni lið í baráttunni gegn fíkniefnunum
Kannabisplönturnar, sem fundust í Grafarholti.
STERK viðbrögð hafa komið fram
við fyrirhuguðum breytingum í
heilbrigðismálum á Norðurlandi
með sameiningu stofnana. Um tvö
hundruð manns tóku þátt í mót-
mælagöngu frá Samkomuhúsinu
að Ráðhústorginu á Akureyri á
laugardaginn.
Skemmst er að minnast hita-
fundar á Sauðárkróki vegna sama
máls og ennfremur mótmælir
starfsmannafélag Heilbrigðisstofn-
unarinnar á Blönduósi hug-
myndum um stórfellda samein-
ingu. Í yfirlýsingu segir að
stofnunin hafi verið vel rekin og
að þjónusta við íbúana muni
skerðast verulega og mannslífum
verði stefnt í hættu. Félagið telur
vinnubrögð yfirvalda „verulega
ámælisverð og bera vott um lítils-
virðingu“ gagnvart starfsfólki og
sjúklingum.
Samstaða Rósa Eggertsdóttir og Edward Huijbens ávörpuðu samkomuna.
Stórfelldri sameiningu
mótmælt á Norðurlandi
Í HNOTSKURN
» Á Akureyri mótmælti fólkþví sem var kallað hreppa-
flutningar á gamla fólkinu.
» Starfsmannafélag Heil-brigðisstofnunarinnar á
Blönduósi segir engin fagleg
rök vera fyrir sameiningu.