Morgunblaðið - 12.01.2009, Síða 13
13
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 12. JANÚAR 2009
Umhverfismál | Evrópusambandið
IÐNAÐURINN Pétur
Reimarsson, for-
stöðumaður stefnu-
mótunar- og sam-
skiptasviðs hjá SA.
Þ
að er ljóst að
Ísland er í
þröngri stöðu
gagnvart
Loftslagssamningi
Sameinuðu þjóðanna
og að það verði erfitt
að sækja frekari heim-
ildir vegna endur-
nýjanlegrar orku, sér-
staklega í ljósi þess að
iðnríkin beita nú miklum þrýstingi á
þróunarríkin um að þau taki einnig á
sig byrðar til að draga úr útstreymi
gróðurhúsalofttegunda,“ segir Pétur
Reimarsson, forstöðumaður stefnu-
mótunar- og samskiptasviðs hjá
Samtökum atvinnulífsins, og vísar til
fyrirhugaðar verslunar með út-
streymisheimildir á opnum markaði.
„Það virðist einnig töluverður
stuðningur við að hluti af þeim út-
streymisheimildum, sem iðnríkin fái
úthlutaðar, verði seldur á uppboðum
eða tekið af þeim gjald. Meðal ann-
ars þess vegna er erfitt að sjá fyrir
sér aukningu á heimildum til Íslands
án endurgjalds.“
Pétur segir loftslagssamninginn
ekki taka yfir sjálfdæmi ríkja um
nýtingu auðlinda sinna en þar sem
ákveðið hafi verið að setja hámark á
útstreymið megi segja að „stjórn-
völd hafi í raun samþykkt þak á nýt-
ingu orkulinda þar sem ekki verði
lengra haldið í aukningu útstreymis
en felst í þessum heimildum“.
Eins og yfirdráttarheimild
Pétur vísar því næst til íslenska
ákvæðisins svokallaða sem hann
segir virka eins og „nokkurs konar
yfirdráttarheimild gagnvart Lofts-
lagssamningi Sameinuðu þjóðanna“,
þannig að ef það dragi úr almenna
útstreyminu þá flytjist samsvarandi
magn úr íslenska ákvæðinu yfir á al-
mennt útstreymi Íslands.
„Gagnvart Loftslagssamningnum
verður því 10% heimild Íslands ætíð
að fullu nýtt,“ segir Pétur, sem álít-
ur að samningsstaðan verði erfið.
„Ísland hefur enn vakið athygli á
sérstöðu sinni og ákvæðinu sem
samþykkt var við gerð Kýótó-
bókunarinnar en það er alveg ljóst
að það verður mjög erfitt að sækja
einhverja aukningu á 10% ákvæðinu
og einnig íslenska ákvæðinu. Þannig
má búast við því að nýtt
samkomulag verði til
þess að möguleikar til
að auka útstreymi hér á
landi eftir 2012 verði
mjög takmarkaðir.“
Inntur eftir þætti
ESB í samningaumleit-
unum í loftslagsmálum
segir Pétur sambandið
annast samninga
aðildarríkja gagnvart
Loftslagssamningi SÞ.
„Sambandið kemur
fram fyrir hönd þeirra
allra og reyndar einnig
fyrir hönd þeirra ríkja
sem sótt hafa um aðild
að sambandinu. Fulltrúar stjórn-
valda aðildarríkjanna taka mismik-
inn þátt í samningaferlinu en sér-
fræðingar sambandsins og aðildar-
ríkjanna vinna náið saman um
útfærslu einstakra þátta.“
Áhrif aðildar að ESB
Pétur segir íslenska ákvæðið aðal-
atriðið í þessari umræðu.
„Lykilþátturinn varðar íslenska
ákvæðið svokallaða en heimildir eins
og íslensk stjórnvöld hafa úthlutað
til orkufreks iðnaðar til ársins 2012
ganga vart inn í evrópska verslunar-
kerfið með kolefniskvóta (ETS) þar
sem ekki er unnt að selja þær. Þar
sem íslenska ákvæðið nær einungis
til útstreymis koldíoxíðs en álverin
losa auk þess svokölluð perflúorkol-
efni sem einnig eru gróðurhúsa-
lofttegundir og falla því undir al-
mennt útstreymi á Íslandi. Ef
íslenska ákvæðið gilti óbreytt áfram
yrðu fyrirtækin að fá úthlutaðar
tvenns konar heimildir þar sem selja
mætti hluta þeirra.“
Með þetta í huga segir Pétur ljóst
að ef ráðist verði í byggingu iðjuvera
hér á landi sem losi gróðurhúsa-
lofttegundir eftir að íslenska ákvæð-
ið sé fullnýtt „gerist það vart án þess
að keyptar verði heimildir af öðrum
ríkjum eða þeirra aflað með
sveigjanleikaákvæðum en slíkt gerir
væntanlega samkeppnistöðu við-
komandi iðjuvers mjög erfiða“.
„Þannig virðist blasa við að semja
þurfi um að ESB aðstoði við að
breyta íslenska ákvæðinu með ein-
hverjum hætti í varanlegar heimildir
og eins hvaða aðgang íslensk fyrir-
tæki eigi að potti ESB fyrir ný fyrir-
tæki í ETS-kerfinu. En á móti kem-
ur að íslenskar orkulindir hjálpa til
við ná 20% marki um endurnýjan-
lega orku árið 2020 í Evrópu,“ segir
Pétur Reimarsson.
Í þröngri stöðu
Möguleikar til að auka útstreymi hér á
landi eftir 2012 verða mjög takmarkaðir
Pétur Reimarsson
GAGNRÝNIN Joris den Blanken,
forstöðumaður orku- og loftslags-
deildar Evrópuskrifstofu samtak-
anna Greenpeace í Brussel.
J
oris den Blanken, for-
stöðumaður orku- og lofts-
lagsdeildar hjá Evrópuskrif-
stofu Greenpeace, telur að
þrátt fyrir að Evrópusambandið
hafi um margt verið leiðandi í stuðn-
ingi við þróun endurnýjanlegra
orkugjafa hafi það ekki beitt sé af
nógu miklu afli gegn hagsmunabar-
áttu orkurisanna.
Á síðustu árum hafi þróunin verið
sú að orkurisarnir hafi nýtt sér til-
slakanir í loftslagsmálum fyrrver-
andi austantjaldsríkja og hafið þar
mengandi raforkuvinnslu. Þar megi
nefna Pólland, þar sem tilslakanir
hafi verið veittar af ótta við að full
innleiðing kolefniskvótakerfis
myndi leiða til hærra raforkuverðs.
Að mati den Blanken ber Evrópu-
sambandinu að ryðja úr vegi slíkum
tilslökunum og róa öllum árum að
því að stuðla að aukinni skilvirkni
raforkukerfanna, samtímis upp-
byggingu hreinni orkuinnviða.
Sambandið geti gert svo miklu
meira í að draga úr
beinni og óbeinni
losun koldíoxíðs frá
heimilum, sam-
göngum og land-
búnaði. Skyn-
samlegra sé að nota
sólarorku til varma-
öflunar með vatns-
hitun en að stíga
það skref aftur á
bak að stuðla að
uppbyggingu kjarn-
orkuvera, sem hafi
nánast engin áhrif í
þá veru að draga úr
þörfinni fyrir inn-
flutt gas til álf-
unnar, einkum frá Rússlandi.
Kostnaður á þriðja aðila nemur
tugum þúsunda milljarða króna
„Við þetta bætist að kolaorkuver-
in greiða ekki fyrir þann kostnað
sem fellur á þriðja aðila vegna hinna
neikvæðu umhverfisáhrifa af kola-
brennslu. Áætlað hefur verið að á
hverju ári nemi sá kostnaður alls
um 357 milljörðum evra,“ segir den
Blanken, og vísar til þess að um-
hverfisskaðinn sé metinn á um
60.700 milljarða íslenskra króna, svo
sem vegna mengunar á
vatnsbólum og breytinga
á loftslagi.
Með því að bæta orku-
nýtni í iðnaðarferlum og
innleiða orkusparandi
tækni í byggingar, svo
eitthvað sé nefnt, megi
draga úr notkun jarðgass
í sambandinu um 14% ár-
ið 2020 og um 58% árið
2050, miðað við að aukn-
ingin héldi áfram að
óbreyttu.
Inntur eftir því hvort
hann taki undir þá gagn-
rýni á sambandið að það
beiti slagkrafti sínum til
þess að komast yfir auðlindir þróun-
arríkja segist den Blanken telja það
ámælisvert að aðildarríki Evrópu-
sambandsins skuli sækja kolaforða
til ríkja sem virði ekki mannréttindi
og sjálfsagðan rétt starfsmanna í
kolanámunum.
Mörg ESB-ríki flytji inn kol frá
Kólumbíu, þar sem málaliðar hreki
bændur af löndum sínum þegar land
sé rutt fyrir námum, og Suður-
Afríku, þar sem réttindi kolanámu-
manna séu mjög ófullnægjandi, líkt
og fjölmörg dauðsföll á ári vitni um.
Gæti gert miklu meira
Forstöðumaður loftslagsdeildar Greenpeace gagnrýnir ESB
Átelur ásælni í kolaforða ríkja sem virða ekki mannréttindi
Joris den Blanken
tekst að semja okkur í gegnum
það. Tekst okkur að fá skilning á
því að álverin hér séu rekin með
endurnýjanlegri orku? Verður
hægt að fá samþykkt að heimilt sé
að leyfa þessum verksmiðjum hér
á landi að fá meiri losun? En þá
þurfum við líka að vera aðilar að
þessu öllu í heild. Skv. EES-
samningnum þá erum við aðilar að
ETS-kerfinu [...] Ef við værum í
ESB þá tækjum við þátt í þeirri
umræðu þar.
Þá spyr maður líka hvort ekki
væri að vænta meiri skilnings hjá
nágrannaþjóðum okkar í Evrópu-
samstarfinu heldur en hjá þjóðum
fjær okkur, sérstaklega þegar við
lítum til þess hversu stórt hlutfall
endurnýjanlegrar orku við höfum
hér heima. Þarna kann að vera um
tækifæri að ræða sem hafa raun-
verulega aldrei komið upp á yfir-
borðið því við höfum ekki verið
inni í þessu tiltekna samstarfi.“
Hlustað yrði á rökin
– Ef svo fer að Ísland gengur í
ESB telur þú að það verði hlustað
á þau rök að hér sé framleitt ál
með endurnýjanlegri orku og að
það muni hafa áhrif á samnings-
stöðu Íslands í ETS?
„Um það get ég ekkert fullyrt í
sjálfu sér en eins og ég upplifi
þetta og mín samskipti við Evr-
ópusambandið og þessa aðila, að
svo miklu leyti sem við náum til
þeirra, þá hef ég ekki fundið fyrir
neinu öðru en fullum skilningi á
sérstöðu Íslands. Það er hlustað á
Íslendinga í tengslum við ákveðin
mál, til dæmis málefni sjávar.
Þannig að á vissum sviðum gætum
við látið rödd okkar hljóma. Við
erum til að mynda með sérþekk-
ingu í málefnum hafsins og á sviði
endurnýjanlegrar orku.“
– Telur þú að það myndi draga
úr líkum Íslendinga á að fá sér-
samninga að stíga skrefið frá EES
til Evrópusambandsins?
„Ég myndi telja að í þessu væru
fólgin veruleg tækifæri í tengslum
við rekstur á starfsemi á borð við
stóriðju, vegna þess að við búum
hér við svo stórt hlutfall endur-
nýjanlegrar orku, sem sambandið
leggur mikla áherslu á í orku- og
umhverfisstefnu sinni.“
Ingimar telur líkur á að aðild að
Evrópusambandinu myndi greiða
fyrir aðgengi að rannsóknar-
styrkjum, sérstaklega á sviðum
þar sem Íslendingar hafa sérþekk-
ingu fram að færa, s.s. í málefnum
hafsins og endurnýjanlegrar orku.
„Þegar kemur að þessum beinu
sjóðum, fyrir utan kannski ramma-
áætlanir, þá yrði það að mínu mati
auðveldara. Það liggur alveg ljóst
fyrir, ef við værum hluti af þessu.“
Hann telur að umhverfismál-
unum yrði vel borgið innan ESB.
„Ég hef enga ástæðu til að ætla
annað en að umhverfismálum yrði
vel borgið í þessu samstarfi. Ég
bendi á að ESB er orðið leiðandi
aðili í öllum umhverfismálum í
heiminum og hefur ekki látið
merkið falla, frekar reist það, ef
eitthvað er.
Hjá Evrópusambandinu er búið
að safna saman gífurlegri þekk-
ingu á þessu sviði. Þar er horft til
Íslendinga þegar kemur að þeim
þáttum sem ég nefndi.“
HLUTVERK ESB
Kristín Linda Árna-
dóttir, forstjóri Um-
hverfisstofnunar.
V
ægi um-
hverfismála
innan
Evrópu-
sambandsins hefur
aukist mjög á
undanförnum árum
og sambandið verið
í fararbroddi við
setningu nýrrar lög-
gjafar á sviði um-
hverfismála, að
sögn Kristínar Lindu Árnadóttur,
forstjóra Umhverfisstofnunar.
„Innan ESB er gert ráð
fyrir að umhverfissjónar-
mið skuli höfð til hlið-
sjónar við gerð og fram-
kvæmd allra stefna
sambandsins en eitt af
meginmarkmiðum ESB
er að vinna að því að upp-
fylla markmiðið um sjálf-
bæra þróun.
Lögð er áhersla á fyrir-
byggjandi aðgerðir og á
greiðsluregluna, öðru
nafni mengunarbóta-
regluna, sem felst í því að
sá sem mengar á að greiða
þann kostnað sem henni
er samfara en ekki sam-
félagið,“ segir Kristín Linda.
Meira á mbl.is/esb
Vægið aukist
Kristín Linda Árnadóttir
Umhverfisverndin ávallt til hliðsjónar
Áhöld eru um
hvort ESB gangi
nógu langt í los-
unarmálunum.